Bunkarnir lækka hægt hjá sýslumanni Ingvar Haraldsson skrifar 27. júní 2015 07:00 Þuríður Árnadóttir, staðgengill sýslumanns, skoðar hluta skjalabunkans sem bíður afgreiðslu hjá embættinu. Fréttablaðið/Vilhelm
Hægt hefur gengið að vinna að fækkun mála sem söfnuðust upp í verkfalli BHM og bíða þinglýsingar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Tæplega ellefu þúsund skjöl voru óafgreidd þegar lögfræðingar hjá sýslumanni komu aftur til starfa á mánudaginn í síðustu viku. Síðan þá hafa bæst við um tvö þúsund ný skjöl. Þuríður Árnadóttir, staðgengill sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, býst við að málunum hafi lítið fækkað þótt embættið hafi ekki enn nákvæmar tölur yfir hve mörg mál hafi verið afgreidd. „Það er ekki farið að vinna það niður að ráði enn þá,“ segir Þuríður. Embættið hefur þegar ráðið sex lögfræðinga og fleiri gætu bæst við á næstu dögum. Hvernig gangi að vinna á halanum sem myndast hafi í verkfallinu velti á því hvernig gangi að þjálfa nýtt starfsfólk. Þá séu lögfræðingar sem hafi verið í verkfalli margir á leið í sumarfrí. Þuríður segir að það gætu liðið margir mánuðir þar til eðlilegt ástand skapast á ný. Þuríður bendir á að vinna við fullnustugerðir á borð við nauðungarsölur hafi ekki enn lent af fullum þunga á embættinu. „Í fullnustugerðunum kemur þunginn ekki fyrr en nokkrum vikum eftir að hægt er að hefjast handa við að vinna, því það eru það langir boðunarfrestir og lögboðnir auglýsinga- og tilkynningafrestir,“ segir Þuríður en fyrstu nauðungarsölurnar fara fram á mánudaginn.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira