Fórnarlamb lögreglunnar fær skaðabætur Guðsteinn Bjarnason skrifar 8. apríl 2015 07:30 Mótmæli gegn leiðtogafundi G8-ríkjanna í Genúa árið 2001 snerust upp í óeirðir. Vísir/EPA
Ítalska ríkið þarf að greiða Arnoldo Cestaro skaðabætur vegna ofbeldis sem hann varð fyrir af hálfu ítölsku lögreglunnar sumarið 2001. Mannréttindadómstóll Evrópu segir aðfarir lögreglunnar hljóta að teljast pyntingar. Cestaro tók þátt í mótmælum gegn leiðtogafundi G8-ríkjanna, sem haldinn var í Genúa 21. til 22. júlí. Föstudaginn 20. júlí voru haldin fjölmenn mótmæli, sem snerust upp í óeirðir og hörð átök mótmælenda við lögreglu. Nokkur hundruð manns slösuðust í átökunum, bæði mótmælendur og lögreglumenn. Þeirra á meðal var Cestaro, sem þá var 62 ára og meiddist illa þegar lögreglan réðst inn í skóla, þar sem hann og fleiri mótmælendur höfðu fengið húsaskjól með leyfi borgaryfirvalda. Mannréttindadómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu að framferði lögreglunnar í skólanum hafi miðast að því að refsa mótmælendum þar í hefndarskyni, og reynt hafi verið að niðurlægja fólk og valda því andlegum sársauka. Þetta framferði jafnist á við pyntingar. Lögreglumenn börðu Cestaro hvað eftir annað með kylfum með þeim afleiðingum að mörg bein í honum brotnuðu og hann hefur enn ekki náð fyrri styrk í hægri handlegg og hægri fótlegg. Í dómnum er sérstaklega tekið fram að Cestaro hafi í engu hagað sér með þeim hætti að það réttlæti þessa meðferð. Honum beri því að fá greiddar skaðabætur.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira