Skuldastaðan batnar en breikka þarf tekjustofnana Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 2. júní 2015 10:00 Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða um og yfir helming allra tekna sinn í launakostnað. vísir/stefán
Fjárhagsstaða sveitarfélaganna hefur batnað frá því eftir hrun, en enn eru mörg þeirra mjög skuldug. Fimm í hópi tólf stærstu sveitarfélaganna skulda meira en milljón á hvern íbúa. Er þá aðeins miðað við A-hlutann, en fyrirtæki þeirra eru ekki tekin með í reikninginn. Þetta kemur fram í ársreikningum fyrir árið 2014. Innanríkisráðuneytið gefur út heildaryfirlit yfir stöðu sveitarfélaganna árlega, en þar sem niðurstaða ársins 2014 er ekki komin settist Fréttablaðið yfir ársreikninga stærstu sveitarfélaganna og skoðaði stöðuna. Ársreikningur sveitarfélagsins Árborgar liggur ekki fyrir. Hæstar eru skuldir miðað við hvern íbúa í Fjarðabyggð, eða tæpar 1,8 milljónir, þá eru þær tæpar 1,6 milljónir í Reykjanesbæ, tæpar 1,2 í Hafnarfirði og rúm milljón á hvern íbúa í Mosfellsbæ og Kópavogi. Þá eru sveitarfélögin mjög misvel stödd þegar kemur að eigin fé. Það er neikvætt í Fjarðabyggð og aðeins rúmir 2 milljarðar í Reykjanesbæ. Hæst er það í Reykjavík, eða 87,6 milljarðar. Launakostnaður er langstærsti útgjaldaliður sveitarfélaganna og í ársreikningunum kemur fram að um önnur hver króna sem sveitarfélögin fá í tekjur fer í laun. Hæst er það hlutfall í Fjarðabyggð og á Akureyri þar sem það nálgast 60%.Halldór HalldórssonHalldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir löngu tímabært að endurskoða tekjustofna sveitarfélaganna. „Útsvarið er aðaltekjustofninn, reyndar mjög mikilvægur tekjustofn, en það eru ákveðnir ókostir við það. Gott dæmi um það er ferðaþjónustan, þar sem útsvarið ferðast ekki með þeim sem fara í árstíðabundin störf í ferðaþjónustunni. Víða um land er aðeins ferðaþjónusta yfir sumarið og þarf að bæta við starfsfólki sem flest á lögheimili á höfuðborgarsvæðinu eða í útlöndum. Við myndum vilja fá hlutdeild í virðisaukaskatti og umferðarsköttum.“ Halldór segir ríkið hafa gefið ádrátt um að ræða það í nýlegri yfirlýsingu tengdri kjarasamningum sem gefin var fyrir helgi. „Þar er rætt um að vera í samstarfi við sveitarfélögin, lækka tekjuskatt og ræða við okkur um útsvarið,“ segir Halldór, sem segir fjármálaráðherra hafa tekið vel í slíkar umræður á fundum tengdum kjarasamningunum.
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira