Áhöfn Týs kemur heim með stolt í farteskinu Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 2. júní 2015 20:00
Varðskipið Týr kom í dag heim eftir ríflega hálfs árs störf á Miðjarðarhafi, þar sem áhöfnin hefur komið að björgun hátt í fjögur þúsund flóttamanna. Skipverjar, sem hafa fengið áfallahjálp vegna starfa sinna, segja erfiðast að koma að börnum í þessum erfiðu aðstæðum. Einar Heiðar Valsson, skipherra á Tý, segir að aðgerðirnar hafi tekið á bæði líkamlega og andlega. „Mér telst til að við séum búin að koma að björgun, með beinum og óbeinum hætti, 3.257 einstaklinga frá fyrsta desember. Í síðustu aðgerð okkar tókum við yfir 300 manns um borð úr tveimur bátum og í næsta bát við hliðina á voru tíu látnir. Þannig að við erum búin að vera einstaklega heppin í þessu starfi okkar. En að fólk sé að leggja upp í þessa hættuför sem er þarna yfir um hávetur með kornabörn í fangi sér, það tekur á að sjá svoleiðis,“ segir hann. Einar segir erfiðast að horfa upp á börn í erfiðum aðstæðumMYND/LANDHELGISGÆSLANÁ nýársdag bjargaði áhöfn Týs um fjögur hundruð flóttamönnum úr skipinu Ezadeenum en um borð voru sextíu börn og og þrjár ófrískar konur. Magnús Þór Guðjónsso, bátsmaður í Tý, segir erfitt og átakanlegt að hafa séð aðbúnað fólksins í skipi sem venjulega flytur dýr. MYND/LANDHELGISGÆSLAN„Það er erfitt að horfa upp á neyðina sem þetta fólk er í en það er ofsalega góð tilfinning að geta hjálpað líka. Það eru skiptar skoðanir um það sem við erum að gera en ég kem heim með stolt í farteskinu. Mér finnst okkur hafa gengið vel. Þetta er búið að vera flott áhöfn og við höfum unnið vel saman. Þannig að nú fer maður bara ánægður inn í sumarfrí,“ segir Andri Már Jónsson háseti og kafari.MYND/LANDHELGISGÆSLAN
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira