Innlent

„Ætlaði að hafa það betra í Noregi en það gekk ekki alveg eftir“

Linda Blöndal skrifar
Íslenskur hjúkrunarfræðingur sem starfaði á sjúkrahúsi í Noregi segir farir sínar ekki sléttar varðandi samskipti við norska ríkið og tryggingakerfið þar í landi. Eftir vinnuslys sé henni neitað um örorkubætur í Noregi þótt hún sé metin á Íslandi með fulla örorku vegna slyssins.

Laufey Sigurðardóttir var 38 ára þegar hún slasaðist við störf á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi. Óumdeilt var að um vinnuslys hafi verið að ræða en Laufey hafði unnið á spítalanum í sex mánuði.

Þetta gerðist árið 2001 og undanfarin fjórtán ár hefur hún barist án árangurs fyrir því að fá viðurkennt í Noregi að hún eigi rétt á örorkubótum vegna vinnuslyssins. Slysið olli alvarlegum taugaskemmdum á öxl og handlegg svo Laufey varð óvinnufær til frambúðar. Sjúkrahúsið greiddi fyrst sjúkradagpeninga en neitaði frekari skoðunum en röntgenmyndum.

„Ég fer strax til yfirhjúkkunnar á deildinni minni tveimur dögum seinna, það fer inn í kerfið strax sem vinnulys og er alltaf skráð sem vinnuslys. Ég fékk sjúkradagpeninga þarna strax í veikindunum,“ sagði Laufey í samtali við Stöð 2 í gær.

Rannsóknir á Íslandi leiddu alvarleg meiðsl í ljós

„Þeir neituðu mér um frekari rannsóknir, ég vildi láta ómskoða og gera eitthvað meira því ég var alltaf að drepast. Þeir sögðu bara: „Nei við vitum hvað þetta er.“ Því ákvað ég sex mánuðum seinna að flytja til Íslands aftur, náttúrulega ein með tvo stráka. Ætlaði að hafa það betra í Noregi en það gekk ekki alveg eftir.“

Þegar heim var komið fór Laufey í þær rannsóknir sem hún hafði ekki fengið í Noregi og komu þá frekari meiðsl í ljós.

„Þá var skekktur axlarliður, rifinn liðpoki og ég þurfti að fara í tvær aðgerðir. Taugasérfræðingurinn taldi þetta vera taugaskaða.“

Rannsóknirnar sýndu að lokum að hún væri með fulla örorku. Í Noregi var það ekki viðurkennt.

Varar fólk við sem ætlar að flytja til Noregs

„Þetta er svo fyndið með þetta samnorræna samstarf. Það virtist ekki vera til staðar. Læknirinn þar dæmir mig til átta prósent örorku, þú verður að vera með 15 prósent til að fá einhver réttindi til örorkubóta í Noregi.“

Laufey var á sínum tíma einstæð móðir og heillaðist af atvinnuauglýsingum frá Noregi um betri laun og vinnutíma. Hún greiddi iðgjöld af laununum sínum til ríkisins en bendir fólki á að norska ríkið sé erfitt við að eiga komi eitthvað upp á.

„Ég á engan rétt, hvorki til örorkubóta né ellilífeyris. Þannig að þessi iðgjöld sem maður borgar hirða bara lífeyrissjóðirnir. Þú verður að vinna í minnst þrjú ár til að eiga einhvern rétt á ellilífeyri eða örorkulífeyri.“ Laufey vill vara fólk við sem fer til Noregs í vinnu.

„Í fyrsta lagi tékkið reglulega vel á tryggingakerfinu þar og athugið með iðgjöld. Eruð þið að borga iðgjöld sem lífeyrissjóðirnir bara hirða?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×