Þegar Zlatan kastaði boltanum í andlitið á Gunnari Nielsen og komst upp með það Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. nóvember 2015 22:45
Zlatan Ibrahimovic er ekki alltaf barnanna bestur á fótboltavellinum þó hann sé nánast alltaf bestur í fótbolta á vellinum. Í Norðurlandaslag Svíþjóðar og Færeyja í undankeppni EM 2014 sýndi hann sínar bestu og verstu hliðar. Zlatan skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri en átti líka að fá rautt spjald. Þrír Íslandsvinir tóku þátt í atburðarás sem endaði með rauðu spjaldi, en Zlatan slapp með skrekkinn eins og stundum áður. Á 79. mínútu í leik Svíþjóðar og Færeyja í júní 2013 keyrði Andreas Granqvist, miðvörður Svíþjóðar, niður Fróða Benjamínsen, leikmann Færeyja þegar gestirnir voru á leið í skyndisókn. Granqvist spilar með Krasnodar og stendur þar vaktina í hjarta varnarinnar með íslenska landsliðsmanninum Ragnari Sigurðssyni. Fróði Benjamínssen skoraði fjögur mörk í 18 deildar- og bikarleikjum fyrir Fram árið 2004. Búlgarski dómarinn Nikolai Yordanov stöðvaði leikinn og rak Granqvist út af, en Gunnar Nielsen, markvörður færeyska landsliðsins, kom hlaupandi úr markinu til að hjálpa dómaranum með ákvörðun sína. Gunnar varði mark Stjörnunnar í sumar og samdi við svo Íslandsmeistara FH eftir tímabilið. Gunnari og Zlatan lenti saman en markvörðurinn ætlaði ekki að taka þátt í frekari slagsmálum og kom sér burt. Þegar hann kom svo hlaupandi aftur að Zlatan og dómaranum kastaði Svíinn boltanum í andlit markvarðarins án þess að dómaratríóið tæki eftir því. Manni færri tryggði Zlatan Svíum sigurinn á 82. mínútu með vítaspyrnu þegar hann hefði líklega átt að vera farinn út af. Þetta skemmtilega atvik má sjá hér að ofan.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn „Hræddir erum við ekki“ Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Sjá meira