Verslun opnar aftur í Hrísey á morgun Atli Ísleifsson skrifar 5. júní 2015 12:50 Úr Hrísey. Mynd/Linda María
Rekstur nýrrar verslunar mun hefjast í Hrísey á morgun, en engin verslun hefur verið starfsrækt í eynni eftir að Júllabúð lagðist af. Fundur var haldinn í apríl síðastliðinn þar sem áform um stofnun hlutafélags um rekstur verslunar í Hrísey voru kynnt. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að öllum hafi gefist kostur á að gerast hluthafar, íbúum eyjarinnar, sumarhúsaeigendum og öðrum velunnurum. „Þann 20. apríl var kynningarfundur sem um fjörtíu manns sóttu. Á fundinum voru kynnt drög að rekstraráætlun og áætluðum stofnkostnaði. Góðar umræður spunnust og voru fundarmenn almennt mjög jákvæðir. Á fundinum var hægt að gefa vilyrði fyrir hlutafé í hinu óstofnaða félagi og voru nokkrir sem staðfestu hlut sinn. Í byrjun maí var stofnað hlutafélag um verslunarrekstur í Hrísey og heitir það Hríseyjarbúðin ehf. Alls söfnuðust 3.8 milljónir króna í hlutafé og standa 55 hluthafar á bak við þá upphæð,“ segir í tilkynningunni. Linda María Ásgeirsdóttir í Hrísey segir ófáar vinnustundirnar liggi nú að baki opnuninni og ótrúlegt hvað fólk sé búið að leggja á sig mikla vinnu til að koma þessu á koppinn. „Búið er að ráða starfsmann í verslunina í sumar og nú er verið að leggja lokahönd á framkvæmdir. Von á fyrstu vörusendingunni í dag og svo er bara að opna og koma lífi í húsnæðið.“ Búðin verður opnuð á morgun klukkan 16 og verður opin alla daga í sumar frá klukkan 10 til 18.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Fleiri fréttir Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Sjá meira