Óvægin ummæli vegna meints eineltis á Ísafirði Bjarki Ármannsson skrifar 29. september 2015 20:00 Eineltismálið á Ísafirði reyndist misskilningur, að sögn Jónu. Vísir/Pjetur
Jóna Benediktsdóttir, aðstoðarskólastjóri Grunnskólans á Ísafirði, harmar umræðu á netmiðlum og víðar eftir að frásögn af meintu einelti meðal nemenda skólans vakti mikla athygli um helgina. Jóna segir að frásögnin sé ósönn með öllu og telur að hugsa þurfi betur um hvernig talað er um svona mál þar sem börn eiga í hlut.Málið byggt á misskilningi Facebook-færsla íbúa á Ísafirði, sem sagði að hópur drengja í tíunda bekk skólans hefði sniðgengið afmælisboð jafnaldra þeirra, vakti mikla athygli og var meðal annars fjallað um málið í netmiðlum. Jóna segir að ekkert slíkt hafi verið í gangi og að afmælisbarnið og móðir hans hafi tekið málið mjög nærri sér. „Mamma drengsins er búin að koma og halda fund með foreldrum barnanna í bekknum, því allir voru bara miður sín yfir þessu,“ segir Jóna. Hún segir málið allt byggt á misskilningi. Drengurinn hafi nefnt við nokkra vini sína að hann væri með opið hús vegna afmælis síns en bara tveir hafi boðað komu sína. Að sögn Jónu varð annar drengurinn svo veikur en hinn hélt fyrir misskilning að afmælisbarnið væri veikt. Hún segir að ekkert ósætti sé á milli drengjanna. „Hinsvegar er það þannig, eins og hlutir gerast stundum, að mamman segir við frænku sína að hann hafi boðið nokkrum strákum en enginn hafi komið,“ segir hún. „Frænkan verður rosalega reið og segir manninum sínum þetta, sem síðan setur inn þessa færslu. Svona gerast hlutir, það myndast keðja af fólki þar til einn segir, þetta er agalegt.“Sagt að setja ætti drengina í gasklefa Málið vakti sem fyrr segir mikla athygli og segir Jóna að ummæli um málið í athugasemdakerfum netmiðla hafi gengið fram af henni. „Það er bara dapurlegt,“ segir hún. „Krakkarnir okkar upplifðu það allt, sumir sögðu að það ætti bara að setja þá í gasklefa og svona. Þeir voru alveg miður sín.“ Hún segir að taka eigi tillit til þess að aðeins sé um börn að ræða, burtséð frá því að í þessu tilviki hafi hvorteð er verið um misskilning að ræða. „Okkur í skólanum er svolítið illa við að flokka börn í þessa hópa, þolendur og gerendur. Allt eru þetta börn og það er þannig að börn hugsa ekki alltaf um hvernig öðrum líður þegar þau gera eitthvað. Mér finnst þess vegna svo leiðinlegt að börn séu dæmd svona grimmt fyrir hegðun sína. Við þurfum kannski að hugsa um hvernig við tölum um svona mál.“
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira