Hárskrautið handgerðar söngtifur Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 16. júlí 2015 11:30 Katrín Sif var ánægð með það að fá tækifæri til þess að halda til Parísar. Vísir/AndriMarinó
Hárgreiðslukonan Katrín Sif Jónsdóttir tók í síðustu viku þátt í því að greiða fyrir sýningu Bowie Wong á Haute couture-sýningu hans sem er hluti af Paris Fashion Week en aðaltískuvikan í París fer fram í september næstkomandi en Haute couture-sýningarnar eru haldnar fyrr. Katrín hefur áður tekið þátt í að greiða fyrir tískuviku þó þetta sé að hennar sögn sú stærsta sem hún hefur tekið þátt í. „Ég hef farið tvisvar á tískuvikuna í Prag í gegnum Kevin Murphy sem er áströlsk hársnyrtivara,“ segir Katrín, sem er partur af Kevin Murphy-teyminu.Hér má sjá eina af fyrirsætunum.Nordicohotos/GettyKatrín fór með teyminu á tískuvikuna í Prag og var þar beðin um að vera einnig í teyminu á Haute couture-sýningunni í París og segist hlæjandi hafa verið fljót að svara þeirri bón játandi. Hún segir upplifunina í París talsvert ólíka þeirri í Prag. „Í París eru mörg hús að sýna í einu, þetta er miklu meiri nákvæmnisvinna og miklu meiri tími sem fer í hvern og einn hönnuð. Allt þarf að vera alveg fullkomið,“ segir Katrín en hver hönnuður er með sitt hárgreiðsluteymi. Greiðslan sem gerð var fyrir sýninguna ber nafnið Cicada og er hönnuð af Masimo More og innblásin af samnefndu skordýri og gerði Bowie Wong handgerðar söngtifur sem settar voru í hár fyrirsætnanna fyrir sýninguna.Það var allt á fullu fyrir sýninguna og Katrín segir gaman að hafa fengið að taka þátt.Mynd/KatrínSifKatrín var alsæl með að hafa komist út til Parísar og að hennar sögn hefur hana alltaf dreymt um að taka þátt í tískuvikum. „Ég fór í fyrsta skipti á tískuvikuna í Prag fyrir þremur árum og var alveg þrjú ár fyrir það að koma mér upp tengiliðum og komast að því hvernig ég kæmist út,“ segir Katrín. Hún útskrifaðist sem hárgreiðslukona árið 2009 og stofnaði stofuna Sprey í kjölfar útskriftar og segist hafa stefnt ómeðvitað á að verða hárgreiðslukona frá unga aldri. „Það var alltaf draumurinn. Ég er búin að vera gera hár síðan ég var svona tíu ára.“ Katrín vonast til að verkefnið muni opna henni fleiri dyr og segir gott að vera búin að skipa sér fastan sess í teyminu og að fólk sé farið að þekkja hennar vinnubrögð.
Mest lesið Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning „Ég er skíthræddur“ Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Fleiri fréttir Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Sjá meira