Aldrei fleiri útskrifast úr HR 20. júní 2015 17:03 Ari Kristinn Jónsson ávarpar samkomuna Mynd/aðsend
553 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Aldrei hafa fleiri nemendur útskrifast frá háskólanum. 368 nemendur voru brautskráðir úr grunnnámi, 184 úr meistaranámi og einn nemandi útskrifaðist með doktorsgráðu. Um 3500 nemendur stunduðu nám við skólann á síðasta skólaári. Flestir luku námi frá tækni- og verkfræðideild háskólans, eða 201 nemandi, þar af 62 með meistaragráðu. 183 nemendur útskrifuðust úr viðskiptadeild, þar af 83 með meistaragráðu. Lagadeild útskrifaði 77 nemendur, þar af 37 með meistaragráðu. Tölvunarfræðideild útskrifaði 92 nemendur, þar af 2 með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu Í ávarpi sínu til útskriftarnema fjallaði Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars um mikilvægi menntunar í síkviku, alþjóðlegu umhverfi: „Ísland nýtur þess að hafa aðgengi að dýrmætum auðlindum í orku, í hafi og í náttúru. Við horfum líka til þess að nýting okkar á þessum auðlindum sé sjálfbær til framtíðar og vonandi auðnast okkur að halda því. En til þess að svo megi verða, þá þurfum við stöðugt að finna nýjar leiðir til að skapa verðmæti og til að bæta okkar samfélag, án þess að ganga á auðlindir framtíðarinnar. Þetta tvennt - hraðar breytingar umheimsins og hagsmunir Íslands til lengri tíma - kallar skýrt á það að við nýtum menntun okkar og hugvit til að breyta okkar samfélagi, skapa ný tækifæri og þora að takast á við krefjandi verkefni. Og það eru engir betur í þann stakk búnir en þeir sem hér útskrifast í dag.“Útskriftarhópurinn í Hörpu.Mynd/AðsendAri greindi einnig frá helstu niðurstöðum könnunar sem gerð var nýlega meðal útskriftarnema við HR. Þar kom meðal annars fram að 83 prósent þeirra útskriftarnema sem stefna á vinnumarkaðinn eru þegar komin með vinnu og flestir þeirra sem eru að leita að vinnu eru bjartsýnir á að fá vinnu fljótlega. Einnig telja 83% útskriftarnema að nám við HR hafa undirbúið þá vel eða mjög vel fyrir þátttöku í atvinnulífinu. Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja og varaformaður stjórnar HR veitti verðlaun VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi. Þau hlutu að þessu sinni: Guðrún Ólöf Olsen, BA í lögfræði; Arnar Guðjón Skúlason, BSc í sálfræði; Tómas Ken Magnússon, BSc í tölvunarstærðfræði; Bjarki Ágúst Guðmundsson, BSc í tölvunarstærðfræði og Tómas Arnar Guðmundsson, BSc í rekstrarverkfræði. Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS og MBA frá HR árið 2007, flutti hátíðarávarp útskriftarinnar og Ingibjörg Ósk Jónsdóttir, BSC í hugbúnaðarverkfræði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Fleiri fréttir „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Sjá meira