Kortlögðu sjávardvöl laxa fyrstir allra Svavar Hávarðsson skrifar 18. apríl 2015 09:00 Á skurðarborðinu Mælimerki sett inn í laxaseiði áður en því var sleppt í Kiðafellsá – sjö sneru til baka eftir ár í sjó af 600 alls. Mynd/VMST
Tímamótarannsókn Veiðimálastofnunar hefur leitt vísindin ögn nær því að skilja sjávarvist laxa, en aldrei áður hefur tekist að fylgjast með laxi frá því hann gengur til sjávar að vori og aftur í ána sína sumarið eftir. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, segir að fram til þessa hafi fiskur verið merktur, siglt með hann út á sjó og heimferðin verið kortlögð. Eins hafi seiðum verið fylgt til sjávar sem svo hafa tapast og nýlega hafa menn merkt hoplax og fylgst með honum sumarið áður en hann gengur aftur í ána. Gönguseiðum var sleppt í Kiðafellsá í Kjós vorin 2005 og 2006 og voru seiðin merkt með mælimerkjum sem komið var fyrir í kviðarholi þeirra. Mælimerkin voru framleidd af íslenska hátæknifyrirtækinu Stjörnu-Odda og mældu hita og dýpi á klukkustundar fresti. Fimm laxar endurheimtust úr sleppingunni 2005 og tveir laxar úr sleppingunni 2006. Í ljós kom að laxarnir sem fóru úr Kiðafellsá héldu sig í byrjun sjávardvalarinnar fyrir vestan og svo suðvestan við Ísland. Um haustið fóru laxarnir í austur sunnan við Ísland langleiðina til Færeyja en sneru svo við og dvöldu það sem eftir lifði vetrar suðvestur af Íslandi uns þeir héldu af stað heim á leið í Kiðafellsá. Sigurður segir að komið hafi í ljós að íslenski laxinn dvelji mögulega á ákveðnu belti sem gengur þvert yfir Norður-Atlantshafið frá suðvestri til norðausturs um Ísland. Eins að hann sýni dæguratferli – laxinn heldur sig dýpra á daginn en á nóttinni en það var ekki vitað fyrr en nú. Seinna árið voru laxarnir sunnar en það fyrra. Þetta sýnir að lax dvelur á slóðum þar sem vænta má mikillar fæðu og er við tiltölulega háan sjávarhita sem nauðsynlegur er til hraðs vaxtar. „Hann heldur sig í straumskilum þar sem er gríðarleg framleiðsla á svifdýrum og fiski. Hann er að elta þessi skilyrði en ekki sérstaka staði,“ segir Sigurður. Sigurður segir að þegar vitað er hvar laxinn heldur sig á hverjum tíma sé hægt að skoða betur umhverfisaðstæður á þeim slóðum og finna skýringar á mismunandi góðum vexti og afföllum laxins milli ára. Þetta sé ekki síst mikilvægt fyrir marga þegar miklar sveiflur eru í veiði í íslenskum ám, en margar kenningar eru uppi um hvað hefur farið úrskeiðis í sjávardvöl laxins, til dæmis áður en lax gekk í ár í fyrrasumar.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Sjá meira