Ragnar: Dreymir um að spila með Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. desember 2015 11:00 Ragnar var einn af bestu leikmönnum Íslands í undankeppni EM 2016. vísir/getty
Landsliðsmanninn Ragnar Sigurðsson dreymir um að spila í ensku úrvalsdeildinni. Þetta kemur fram í viðtali við Guðmund Hilmarsson í Morgunblaðinu í dag. Ragnar hefur leikið með rússneska úrvalsdeildarliðinu Krasnodar síðan 2014 en vill yfirgefa félagið og reyna fyrir sér í annarri deild. " Ég er búinn að tjá forráðamönnum Krasnodar að ég vilji fara. Það eru ákveðnir hlutir þarna sem ég er ekki ánægður með en ég vil ekki ræða um það á þessu stigi," segir Ragnar í viðtalinu. Hann tekur þó fram að hann kunni ágætlega við sig í Rússlandi. "Það er ekki það að félagið hafi ekki staðið í skilum og borgi ekki á réttum tíma. Það er vel hugsað um okkur leikmennina og mér líkar vel við allt fólkið þarna. "En staðan er sú að ég vil fara en vandamálið er það að félagið má ekki kaupa leikmenn sem stendur vegna þess að það hefur ekki náð að fylgja reglum UEFA um fjárhagslega háttvísi. Það má selja mig og getur þá keypt leikmann fyrir þann pening. Krasnodar vill því ekki sleppa mér neitt ódýrt. Ég vonast eftir því að halda mínu sæti í landsliðinu, spila vel á EM og eiga þar með möguleika á að verða keyptur." Í viðtalinu segir Ragnar að draumastaðurinn sé enska úrvalsdeildin og draumaliðið Liverpool. "Ég held eiginlega ekki með neinu liði í dag en þegar ég var yngri var Liverpool mitt lið og það var líka liðið þeirra pabba og Bjössa bróður. Maður skal aldrei segja aldrei. Það er kannski fjarlægur draumur að spila á Englandi en ef ég næ ekki að uppfylla þann draum þá fer ég ekkert að grenja," segir Ragnar sem lenti í 11. sæti í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2015.
Fótbolti Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn KR - ÍA | Mætast aðra umferðina í röð Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Fleiri fréttir Mark tekið af Hákoni í góðum sigri sem kemur Lille á toppinn Brighton valtaði yfir nýliðana Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri KR - ÍA | Mætast aðra umferðina í röð Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn þurfa á stigum að halda Valur - Þór | Akureyringarnir berjast fyrir lífi sínu FH - KA | Bæði lið reyna að halda sér uppi Þróttarar brutu bikarinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Sjá meira