Vilja bráðaaðgerðir til bjargar byggð í Grímsey Sveinn Arnarsson skrifar 16. júní 2015 07:00 Ef ekkert verður að gert er líklegt að byggð í Grímsey leggist af á næstu árum. Fyrirtæki eru yfirskuldsett og þurfa aðstoð. vísir/pjetur
Lagt er til að Grímsey verði gefinn 400 tonna byggðakvóti, að ferjusiglingum verði fjölgað umtalsvert sem og áætlunarflugi, húshitun í eynni verði endurbyggð sem og að Íslandsbanki afskrifi vaxtakostnað og endursemji um lán við sjávarútvegsfyrirtæki í eynni. Beinn kostnaður hins opinbera af þessum hugmyndum er áætlaður í kringum fimm hundruð milljónir króna. Matthías RögnvaldssonAðgerðahópur um að hjálpa atvinnulífi og byggð í Grímsey leggur þessa tillögu á borð forsætisráðherra. Í hópnum sátu Höskuldur Þórhallsson og Steingrímur J. Sigfússon sem þingmenn kjördæmisins, Ingi Björnsson og John Júlíus Cariglia frá Íslandsbanka, Þorvaldur Lúðvíks Sigurjónsson frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar og lögmaður útgerðaraðila. Fulltrúi Akureyrar var Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar. Eiríkur Björn BjörgvinssonEiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, segir það skipta miklu máli að ná lausn á þeim vanda sem byggð í Grímsey stendur frammi fyrir. „Búseta í eynni á sér um 800 ára sögu og ég trúi því að allir Íslendingar vilji viðhalda byggð í eynni. Það er einnig ljóst að allir þeir aðilar sem koma að borðinu þurfa að leggja sitt af mörkum til þess að það takmark náist,“ segir Eiríkur Björn. Lagt er til að Grímsey fái 400 tonna byggðakvóta og að Byggðastofnun og ráðuneyti atvinnumála móti reglur um hvernig veiðiheimildir nýtist sem best til að styrkja veiðar og vinnslu í Grímsey. Kvótinn er metinn á um 160 milljónir króna. Einnig er lagt til að innanríkisráðuneytið leggi til fjárveitingu til að fjölga ferðum Sæfara sem siglir milli lands og eyjar allt árið um kring og að fjölga flugferðum milli Akureyrar og Grímseyjar. Í þriðja lagi er lagt til að hafinn verði undirbúningur að því að byggja upp hitaveitu í Grímsey sem mun kosta um 80 milljónir króna. Í fjórða lagi er lagt til að Akureyrarbær og Byggðastofnun starfi saman með málefni Grímseyjar og að fleiri tækifæri verði skoðuð fyrir byggð í eynni. Matthías Rögnvaldsson segir vinnuna hafa gengið ágætlega. „Við í nefndinni skoðuðum til að mynda styrki við ferjuflutninga til Vestmannaeyja og við erum í raun að setja fram sams konar tillögur og er verið að vinna með þar,“ segir Matthías.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Sjá meira