Segir þjóðarstoltið hafa skipt máli í kreppunni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. júní 2015 14:27 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. vísir/vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir að þjóðarstolt Íslendinga hafi verið mikilvægt til þess að takast á við þau vandamál sem þjóðin stóð frammi fyrir í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta kom fram í viðtali við forsætisráðherrann á BBC World Service í dag. Þáttastjórnandi spurði Sigmund Davíð hvað Grikkir gætu lært af Íslandi en mikið hefur verið talað um að þeir ætli sér að fara „íslensku leiðina“ út úr kreppunni með því að setja bankana í þrot og koma á gjaldeyrishöftum.Stór munur á vanda Íslendinga og Grikkja Forsætisráðherra fór varlega í að gefa Grikkjum ráð þó hann segði að það mætti eflaust læra ýmislegt af því hvernig Ísland tókst á við kreppuna. Það væri þó stór munur á stöðu landanna þar sem Grikkland væri í Evrópusambandinu og með evru, ólíkt Íslandi. Sagði Sigmundur að það hafi á margan hátt verið hjálplegt að Ísland var með sinn eigin gjaldmiðil og ekki í ESB þegar kreppan skall á. Benti hann meðal annars á það atvinnuleysi hér hafi ekki náð þeim hæðum sem það gerði í Suður-Evrópu auk þess útflutningur hafi aukist.Icesave spurning um þjóðarstolt Inntur eftir því Ísland hafi náð að halda virðingu sinni og þjóðarstolti, öfugt við Grikki, sagði Sigmundur: „Ég held að ákveðið þjóðarstolt sé mikilvægt þegar kemur að því að taka á alls kyns vandamálum, þar á meðal efnahagslegum. Það hjálpar ef menn eru stoltir af sínu samfélagi, sögunni. Það hjálpar til við að þjappa fólki saman og leysa vandann, jafnvel þegar menn standa frammi fyrir því sem virðast vera hótanir.“ Hann sagði það meðal annars hafa verið spurningu um þjóðarstolt að íslenskur almenningur ætti ekki að borga Icesave-skuldirnar þó allir hafi verið sammála um að það þyrfti að borga innistæðueigendum í Bretlandi og Hollandi. Sá peningur átti einfaldlega að koma úr þrotabúum föllnu bankanna eins og raunin varð.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira