Einn og einn anarkisti sem fékk lítinn hljómgrunn Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. júní 2015 15:33 Fleiri lögreglumenn verða kallaðir til en fyrri ár vegna mótmælanna sem boðað hefur verið til á Austurvelli á morgun. Vísir/Daníel
Blásið verður til mótmæla á Austurvelli í Reykjavík á morgun á þjóðhátíðardegi Íslendinga en yfirskrift þeirra er: „Ríkisstjórnina burt – Vér mótmælum öll“ og hafa liðlega fjögur þúsund manns boðað komu sína. Arnar Rúnar Marteinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu, segir að þrátt fyrir þennan mikla fjölda verði ráðstafanir lögreglu með hefðbundnum hætti og að lokanir verði svipaðar og fyrri ár. Þó verði kallaður til meiri mannafli. Þá verða hinar hefðbundnu óeirðagirðingar sem komið hefur verið fyrir fyrir framan alþingishúsið í fyrri mótmælum hvergi sjáanlegar á morgun – einfaldlega vegna þess að þær skapa svo mikinn hávaða þegar í þær er barið. „Við getum í raun ekki notað þessar girðingar því þá værum við í raun að eyðileggja athöfnina sjálfir ef fólk færi að banka í hana. Það er ekkert í myndinni að vera með svoleiðis girðingar“ segir Arnar. Lögreglan muni hinsvegar reiða sig á kaðla og rimlagirðingar sem komið hefur verið fyrir vegna hátíðahalda á þjóðhátíðardaginn undanfarin ár.Sjá einnig: Borgarfulltrúi Framsóknar vandar mótmælendum ekki kveðjurnar „Við vonumst auðvitað til þess að þetta gangi allt vel fyrir sig og fólk leggi frekar áherslu á það sem sameinar á þessum degi en það sem sundrar – svona af því að þetta er sautjándi júní,“ segir Arnar. Lögreglan verði þó tilbúin til að grípa inn í komi eitthvað upp á. Á fjórða þúsund manns hefur boðað komu sína á mótmælin á Austurvelli á morgun og Arnar býst við því að það geti orðið þröngt um mannskapinn sem safnast þar saman. „Í fyrra er áætlað að hátíðargestir hafi verið upp undir tvö þúsund þannig að ef það fara að koma einhverjar þúsundir aukalega þá getur orðið þröngt á þingi þarna,“ segir Arnar. Ekkert sérstakt svæði verði fyrir mótmælendur og því þurfi þeir einhvern veginn að koma sér fyrir umhverfis hið hefðbundna hátíðarsvæði á vellinum miðjum.Sjá einnig: „Ég held að við ættum að hugsa aðeins meira til barnanna“ Aðspurður um hvort lögreglan hafi áður þurft að grípa til sérstakra aðgerða á þessum degi segist Arnar ekki muna eftir neinum mótmælum á þessum degi – að minnsta kosti engum í líkingu við þau sem boðuð eru á morgun. Þó hafi komið til þess að lítill hópur manna hafi verið með háreysti að þessu tilefni. „Það voru nokkrir á sínum tíma, en nú erum við að tala um að á fjórða þúsund manns hafa boðað komu sína. Það var einn og einn svona anarkisti að koma hérna 2009 -10 og létu sjá sig niður frá en fengu lítinn hljómgrunn og kunnu illa við sig þarna innan um hitt fólkið,“ segir Arnar. Hann biðlar til þeirra sem ætla að mótmæla á morgun að taka tillit til hvors annars. Fólk hafi rétt á að nýta sitt tjáningarfrelsi – „en það þarf að gera sér grein fyrir því að þegar það fer að rekast á rétt annarra þá getur orðið núningur og við við viljum helst að til þess komi ekki.“
Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Innlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Erlent Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Innlent Halla mun funda með Xi Jinping Innlent Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Innlent Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Innlent Fleiri fréttir Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti „Það er ekkert ósætti eða rifrildi“ Sjá meira