„Ég hef enga vitneskju um hvað kom fyrir barnið mitt“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. september 2014 09:00 Umboðsmaður barna segir hafið yfir skynsamlegan vafa að slegið hafi verið á rass barna í þeim tilgangi að halda uppi aga. Vísir/GVA
Móðir barns sem var á 101 leikskóla segist lifa í óvissu um hvort dóttir hennar hafi verið beitt harðræði. Myndband náðist á síðasta ári af starfsmanni skólans rassskella ómálga barn. Umboðsmaður barna hefur gagnrýnt ákæruvaldið harðlega fyrir að láta málið niður falla eftir rannsókn. Umboðsmaður segir hafi yfir skynsamlegan vafa að ómálga barn hafi verið beitt ofbeldi. „Ég hef enga vitneskju um hvað kom fyrir barnið mitt,“ segir Sif Jóhannsdóttir, móðir stúlku sem var á leikskólanum. „Dóttir mín var á þessum skóla í um ár en hún útskrifast einum mánuði rúmum eða tveimur áður en málið kemur upp.“ Hringdi sjálf í lögregluna Sif segist í fyrst hafa heyrt af málinu í gegnum fjölmiðla en í kjölfarið hafi hún haft sjálf samband við lögreglu. „Ég hafði sjálf samband við lögreglu þegar málið kom upp og spurði hvort ég gæti eða hvort ég ætti einhvern rétt á því að stíga fram og láta rannsaka hvort það hafi eitthvað komið fyrir barnið mitt,“ segir hún. Ekkert var hins vegar hægt að gera þar sem dóttir Sifjar hafði hætt í skólanum áður en að sumarstarfsmaðurinn sem á endanum greindi frá harðræðinu hóf störf. Engin gögn voru því til sem snertu dóttur hennar beint en starfsmennirnir sem sakaðir voru um verknaðinn höfðu verið við störf á meðan skólagöngu dóttur hennar stóð. „Í rauninni ekki höfum við ekkert í höndunum. Það er rosalega óþægilegt. Eini aðilinn sem hafði eitthvað í höndunum voru foreldrar barnsins sem náðist á myndband,“ segir Sif. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, gagnrýndi harðlega ákvörðun ákæruvaldsins að láta málið niður falla.Vísir / Pjetur Málið látið niður fallaEftir að foreldrar barnsins sem sást beitt harðræði á myndbandinu kærðu málið fór það til rannsóknar hjá lögreglu. Niðurstaðan var hinsvegar að láta málið niður falla þar sem að ekki hafi verið „um að ræða háttsemi sem hafi verið til þess fallin að skaða barnið andlega né líkamlega“. Umboðsmaður barna hefur hinsvegar bent á að eftir að barnaverndarlögum var breytt árið 2009 sé ekki gerð krafa um að harðræði valdi skaða til að það sé bannað. Vísir hefur einnig fjallað um að í nefndaráliti sem lagt var fram samhliða lagabreytingunum sé sérstaklega vísað til þess að rassskellingar teljist til ofbeldis. Félag foreldra leikskólabarna í Reykjavík telur málið ekki aðeins varða börnin á 101 leikskóla heldur öll leikskólabörn. Í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér eftir að umboðsmaður skilaði áliti þar sem kom fram að málið væri litið alvarlegum augum. Þá kom fram að málið varðaði skýlausan rétt barna til að búa við öryggi í leikskólum án þess að velferð þeirra væri stofnað í hættu. Vöknuðu upp spurningar Sif segir að eftir að málið hafi komið upp hafi áhyggjurnar sótt á hana. „Það veldur okkur ofboðslega miklum áhyggjum,“ útskýrir Sif. Hún segir að dóttur sinni hafi gengið ill að aðlagast leikskólavistinni; hún hafi grátið mikið og verið óhamingjusöm. „Við skrifuðum allar okkar tilfinningar bara á foreldralegt stress. Tókum ekki mark á því,“ segir hún. „Ég náttúrulega veit ekki hvort það kom eitthvað fyrir barnið eða ekki en maður hefur náttúrulega miklar áhyggjur af því að það hafi komið eitthvað fyrir.“ Sif bendir á að margir foreldrar séu í sömu stöðu og hún. Mynd tengist frétt ekki beint.Vísir / Vilhelm Fær aldrei svör Sif segist reikna með því að fá aldrei svör við því hvort eitthvað hafi komið fyrir dóttur sína á leikskólanum. „Þetta eru ómálga börn þannig að það er engu hægt að svara. Ég þarf í raun að búa við þá óvissu um hvort það hafi eitthvað komið fyrir dóttur mína eða ekki. Ég mun aldrei fá svör við því.“ Hún segist hafa íhugað að reyna sjálf að leita svara. Til að mynda með því að hringja í fyrrverandi starfsmenn skólans. „Ég hef oft íhugað hvort ég ætti að hringja í einhverja af starfsmönnunum sem voru í skólanum til að spyrja og reyna að fá einhver svör en auðvitað er það ekki hægt,“ segir hún. Fleiri foreldrar eru í sömu stöðu og Sif. „Við þurfum öll að lifa við þessa óvissu um að vita ekki hvort barnið okkar hafi orðið fyrir einhverjum harmi eða ekki,“ segir hún og heldur áfram: „Við erum ansi margir foreldrar í þessari stöðu því að þeir starfsmenn sem um ræðir og þeir sem að voru sakaðir um eitthvað voru búnir að vera þarna í lengri tíma. Skólinn er búinn að vera þarna í fjöldamörg ár.“
Tengdar fréttir Sérstaklega talað um rassskellingar þegar barnalögum var breytt Umboðsmaður barna telur að lögreglan hafi vísað til orðalags eldra ákvæðis laganna 19. september 2014 16:38 Velferðarnefnd skoðar mál 101 leikskóla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir vilja löggjafans vera að banna rassskellingar 22. september 2014 13:30 Umboðsmaður barna: Hafið yfir skynsamlegan vafa að ómálga barn var beitt ofbeldi Gagnrýnir harðlega ákvörðun lögreglu og ríkissaksóknara að láta kæru foreldra barns á 101 leikskóla falla niður 19. september 2014 13:33 Fordæma niðurfellingu máls gegn starfsmanni 101 leikskóla Félag foreldra leikskólabarna í Reykjavík segir í yfirlýsingu að niðurfelling málsins sé aðför að öryggi barna í leikskólum. 22. september 2014 15:44 Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Sjá meira
Sérstaklega talað um rassskellingar þegar barnalögum var breytt Umboðsmaður barna telur að lögreglan hafi vísað til orðalags eldra ákvæðis laganna 19. september 2014 16:38
Velferðarnefnd skoðar mál 101 leikskóla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir vilja löggjafans vera að banna rassskellingar 22. september 2014 13:30
Umboðsmaður barna: Hafið yfir skynsamlegan vafa að ómálga barn var beitt ofbeldi Gagnrýnir harðlega ákvörðun lögreglu og ríkissaksóknara að láta kæru foreldra barns á 101 leikskóla falla niður 19. september 2014 13:33
Fordæma niðurfellingu máls gegn starfsmanni 101 leikskóla Félag foreldra leikskólabarna í Reykjavík segir í yfirlýsingu að niðurfelling málsins sé aðför að öryggi barna í leikskólum. 22. september 2014 15:44