„Þetta er algjör slysagildra og alveg ömurlegt fyrir mig að lenda í þessu“ ingvar haraldsson skrifar 18. ágúst 2014 12:35 Atli mun hafa skrúfur og járnplötu í hendinni ævilangt. vísir/gva „
Þetta er algjör slysagildra og alveg ömurlegt fyrir mig að lenda í þessu“ segir Atli Már Sveinsson sem handleggsbrotnaði í hjólreiðaslysi við Gullinbrú á fimmtudag. Atli var að hjóla úr Grafarvoginum á leið undir Gullinbrú þegar hann mætti öðrum hjólreiðamanni sem kom fyrir blindhorn sem er undir brúnni. „Við sáum hvorn annan of seint og hjóluðum framan á hvorn annan. Hann var á hærra hjóli en ég svo hann lenti beint á framhandleggnum. Ég fann strax að handleggurinn var brotinn,“ segir Atli. Hinn hjólreiðamaðurinn slapp vel frá slysinu að sögn Atla: „Hann brotnaði ekki en marðist aðeins hnúunum.“ Atli braut beinið sveif í framhandleggnum og verður frá vinnu um einhvern tíma. „Ég vona að ég verði ekki með skerta hreyfigetu eftir slysið. Ég fór í aðgerð þar sem beinið var fest saman með járnplötu og sex skrúfum sem ég mun þurfa að bera alla ævi. Ég vona bara að ég verði ekki of lengi frá vinnu.“ „Ég hef áður verið nálægt því að lenda í slysi þarna og ég veit um fleiri sem hafa verið nálægt því. Það voru speglar þarna en þeir voru teknir niður,“ segir Atli en bætir við að líklegt hafi skemmdarverk átt þátt í að speglarnir hafi verið teknir niður. Myndband af aðkomunni á blindhorninu má sjá neðst í fréttinni en þar munaði mjóu að slys yrði.Hér má sjá drög að tillögu um hvernig hin nýi stígur undir Gullinbrú muni líta út.Framkvæmdir vegna blindhornsins hefjast í haustStefán Agnar Finnsson, yfirverkfræðingur hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar segir að framkvæmdir muni hefjast í september til að laga aðkomu fyrir hjólreiðamanna að Gullinbrúnni. „Framkvæmdirnar verða boðnar út seinni hluta mánaðarins, það tekur einhverjar vikur að ganga frá tilboðum og formlegheitum en ég á von á því að framkvæmdir hefjist í september. Þá verður þetta opnað meira þannig að þetta blindhorn hverfi og sjónlínan verði betri.“ Krístín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar deildi mynd inn á hópnum Samgönguhjólreiðar á Facebook þar sem hún sagði frá drögum að hvernig hinn nýji hjólreiðastígur myndi líta út. Krístin lagði áherslu á að hönnun stígsins væri í vinnslu og því ekki víst að um endanlega hönnun væri að ræða. Aðspurður hvort Reykjavíkurborg beri einhverja ábyrgð á slysinu segist Stefán ekki telja svo vera: „Maður verður að miða sína hegðun eftir aðstæðum á hverjum stað. Það er ekki hægt að gera veghaldara ábyrgan sem slíkan.“ Hér að neðan má sjá myndband þar sem litlu munaði að yrði slys vegna blindhornsins við Gullinbrú.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira