Óánægðir með sameiningu heilbrigðisstofnana Samúel Karl Ólason skrifar 15. júlí 2014 11:53 Vísir/pjetur
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki lýsa yfir megni óánægju með ákvörðun heilbrigðisráðherra um sameiningu stofnunarinnar í Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Yfirlýst markmið sameiningarinnar munu vera að styrkja rekstra- og stjórnunareiningar, auka öryggi íbúa með góðri heilbrigðisþjónustu og nýta fjármuni betur. Þá á sameiningin að færa ákvarðanatöku í auknu mæli frá ráðuneyti til heimamanna. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir heimamanna hafi ekki fengist svör um hvernig þessum markimiðim skal náð. „Markmið þessi eru ekki trúverðug í ljósi þess að þrátt fyrir ítrekaðar óskir framkvæmdastjóra og starfsmanna HS, sveitarstjórnarfulltrúa í Skagafirði og Hollvinasamtakanna hafa engin svör fengist við ofangreindum spurningum eða yfir höfuð hvernig ráðherra/ráðuneyti sér fyrir sér að starfsemi stofnunarinnar verði eftir sameiningu,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir að fram til þessa hafi ráðherra og ráðuneyti hunsað allar óskir heimamanna. „Meðan ekki er hægt að sýna fram á hvernig ofangreind markmið ráðuneytisins eiga ða nást má leiða líkur að því að samining stofnana á svo stóru svæði muni leiða til eftirfarandi: Rekstrar- og stjórnunarumhverfi stofnunarinnar mun veikjast þar sem ákvörðunarvaldið færist fjær henni. Öryggi íbúanna verður frekar ógnað þar sem fara þarf um langan veg til að nálgast ýmsa þjónustu sem nú er til staðar í heimabyggð. Kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu almennt mun aukast eftir því sem íbúar þurfa að fara um lengri veg til að sækja sér þjónustuna, með tilheyrandi vinnutapi og óhagræði fyrir íbúana. Stjórnunarvald stofnunarinnar mun færast fjær og ákvarðanavald heimamanna mun því veikjast til muna. Nú þegar er erfitt að fá lækna og hjúkrunarfólk til starfa á landsbyggðinni. Sameining stofnana á svo stóru svæði mun auka ennfrekar á þá erfiðleika. Sameining stofnana mun leiða til enn frekari brottflutnings menntaðs starfsfólks þeirra og þannig veikja enn frekar byggðirnar umhverfis þær.“ „Það er með öllu ólíðandi að ráðherra og ráðuneyti hans skuli fara fram með þeim hætti sem raun ber vitni. Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki skora á ríkisstjórn Íslands að grípa inn í þann óheillafarveg sem málið er komið í og ljúka nú þegar þeim viðræðum sem hafnar eru við Sveitarfélagið Skagafjörð um yfirtöku á rekstri HS og hlusta á vilja heimamanna.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira