Leikhópurinn Lotta lenti í veðurhremmingum Bjarki Ármannsson skrifar 15. ágúst 2014 16:04 Lottuliðar á góðri stund. Mynd/Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn Lotta lenti í ekta íslenskum veðurhremmingum í aðdraganda sýningar þeirra í Gilsfirði á Vesturlandi síðastliðinn sunnudag. Lítill skýstrókur gerði sig þá líklegan til að hafa á brott leikmynd hópsins. „Þar var búið að vera töluvert vindasamt en samt að lægja þegar við byrjum að koma okkur fyrir,“ segir Stefán Benedikt Vilhelmsson, leikfélagi í Lottu. „Við vorum búin að setja niður hluta af leikmyndinni þegar við fáum á okkur vindhviðu, sem var eiginlega svona bara lítill skýstrókur. Hann lyftir bara þessum 400 til 500 kílóum af leikmynd upp í loftið og fleygir þeim yfir þrjá leikara.“ Tveir meðlimir hópsins slösuðust við þetta og tafðist uppsetning leikmyndarinnar um nokkra stund. Næst var leikmyndin borin upp brekkuna og flutt inn í tjald. „Við vorum búin að setja það svona að hálfu leyti upp þegar tjaldið byrjaði að fjúka,“ segir Stefán. „Og það þurfti eina sex fíleflda karlmenn til að halda því niðri á meðan við rifum leikmyndina aftur niður þar og komum henni ofan í kerru.“Illþýðið slasaðist Svo fór að leikhópurinn þurfti að flytja sig upp á loft gamla skólahússins á svæðinu og var þar flutt um það bil klukkutíma söngskemmtun fyrir um hundrað börn og fullorðna. Má því segja að betur hafi farið en á horfðist. „Við gátum að vísu ekki verið með leikmyndina, en þetta bjargaðist fyrir horn,“ segir Stefán. „Það vildi líka svo heppilega til að þeir sem slösuðust eru sko illþýðið, eða vonda fólkið, í sýningunni. Þannig að þetta hjálpaði kannski bara til frekar en hitt. Ein er með hálskraga og haltrandi og hinn með nokkra marbletti.“ Að sögn Stefáns hafa aðrir leikfélagar verið mjög góð við þau slösuðu svo að þau komist í gegnum síðustu sýningarnar á ferðalaginu. Þær verða í Elliðaárdalnum nú á mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira