„Jafn eðlilegt og að binda Golden Retriver við ljósastaur“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2014 22:37 Leiðarahöfundirinn segir ekki óalgengt að ganga fram á „yfirgefin“ börn í barnavögnum á götum Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm „
Í landi jökla, eldfjalla og goshvera er ein áhugaverðasta sjónin öll sofandi börnin.“ Svona hefst leiðari kanadíska blaðamannsins Jennifer Lang um heimsókn hennar til Íslands en hana rak í rogastans þegar hún sá fjöldann allan af barnavögnum á götum Reykavíkur „Þeir eru alls staðar í höfuðborginni; á fjölförnum breiðstrætum, friðsælum íbúagötum og fyrir utan búðir, kaffihús og veitingastaði. Flest barnanna eru sofandi í vögnunum en ekkert foreldri í augsýn.“ Lang segir þessa sjón koma ferðamönnum í opna skjöldu enda flestir óvanir því að að skilja börn eftir „afskiptalaus“. „Í augum Íslendinga er það að skilja barn eftir fyrir utan hins vegar jafn eðlilegt og að binda Golden Retriver við ljósastaur,“ bætir hún við. Lang tók markaðsfræðinginn Katrínu Friðriksdóttur tali sem tjáði henni að Íslendingar hafi barnavagna sína undir berum himni jafnt á sumrin sem og á veturna. Hún hafi sjálf til að mynda drukkið kaffi á kaffihúsi í um klukkustund meðan sex mánaða gömul dóttir hennar svaf í vagni sínum fyrir utan. „Íslendingar eru nánast helteknir af því að láta börn sín sofa úti,“ sagði Katrín og yppti öxlum. „Það er eina leiðin til að gera þetta.“ „Þú ert álitinn furðulegur ef þú vilt að þau sofi inni,“ bætti vinkona hennar, Laufey Skúladóttir, þá við. Jennifer Lang segir að smæð Íslands og lág glæpatíðni hérlendis spili stærsta rullu í því að foreldrar geti leyft sér að geyma barnavagna sína úti á götu meðan þeir skreppi sjálfir inn og klári erindagjörðir sínar. Ísland sé lítil eyja og að það tæki ekki langan tíma að hafa hendur í hári þess sem reyndi að stela barni úr barnavagni. Fyrir vikið hafa foreldrar leyft börnum sínum að hvílast utandyra svo kynslóðum skiptir og vilja þær íslensku rekja það allt til fyrstu ára Íslandsbyggðar, þegar hreint loft var af skornum skammti inni í torfkofunum. Laufey segir í samtali við Lang að hún hafi ekki áttað sig á því hvað þetta gæti komið útlendingum spánskt fyrir sjónir fyrr en hún flutti sjálf til Seattle og leyfði níu mánaða barni sínu að sofa í vagni fyrir utan kaffihús. Fyrir vikið hafi hún fengið mörg hornaugu, „meira að segja frá hippunum,“ og einn maður hafi meira að segja gengið upp að henni og sagt þetta ekki vera eitthvað sem „góð móðir myndi gera.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi „sérkennilega hegðun“ íslenskra foreldra kemst í heimsfréttirnar en frægt er þegar Svanhildur Hólm kynnti spjallþáttastjórnandann Opruh Winfrey fyrir „afskiptalausum börnum“ í þætti hennar árið 2005.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Sjá meira