Bakpokaferðamenn miseyðslusamir Heimir Már Pétursson skrifar 10. ágúst 2014 21:01
Mjög misjafnt er hversu miklu ferðamenn sem gista á tjaldstæðinu í Laugardal eyða miklum peningum á ferðalagi sínu til Íslands, samkvæmt lauslegri og óvísindalegri könnun fréttastofunnar í dag. Ein ódýrasta leiðin til að ferðast á Íslandi er auðvitað að fara á puttanum og tjalda eins og fjölmargir ferðamenn gera t.d. í Laugardalnum. En þótt ferðamenn tjaldi þarf það ekki endilega að þýða að þeir eyði minna en aðrir ferðamenn þótt vissulega séu líkurnar meiri til þess. En miðborgarstjóri og fleiri hafa sagt að Íslendingar þurfi meira af eyðslusömum ferðamönnum. Dieter frá Þýskalandi, kona hans og sonur hafa verið hér í tvær vikur. Hann reiknar með að þau eyði um þrjú þúsund evrum, eða um 480 þúsund krónum. Robert kemur frá Bandaríkjunum og hefur verið í vísindaferð um Vestfirði í einn mánuð. En þótt hann hafi meira og minna dvalið í felti allan tíman reiknar hann með að eyða um 2.500 bandaríkjadollurum, eða um 290 þúsund krónum. Tvær franskar stelpur sem urðu á vegi fréttastofunnar, Vanessa og Cindy, eru dæmigerðir bakpokaferðamenn, þótt þær hafi leigt sér bíl í einn dag af þeim tíu sem þær verða í landinu. Þær reikna ekki meða að eyða miklum peningum á Íslandi, segjast ferðast ódýrt. Einu útgjöldin sé einstaka rútuferðir og svo matur. Hópur breskra krakka er hér í skipulagðri þriggja vikna ferð æskulýðssamtaka en tekst samt að eyða nokkrum peningum. Erin segir að þótt þótt matur sé innifalinn í ferðinni, eyði þau töluvert af peningum í „alvöru mat, hamborgara og pizzur,“ eins og hún orðaði það. Matthew í sama hópi reiknar með að hann muni ekki eyða meiru en 50 pundum, eða tæpum tíu þúsund krónum, á meðan á dvöl hans stendur.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira