Innlent

Nautahakk hefur hækkað um 15% á 18 mánuðum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Nautakjötið er flutt inn frá að minnsta kosti níu löndum, þar á meðal Danmörku, þaðan sem þessi myndarlegi kjötbiti kemur.
Nautakjötið er flutt inn frá að minnsta kosti níu löndum, þar á meðal Danmörku, þaðan sem þessi myndarlegi kjötbiti kemur. vísir/valli
Á einu og hálfu ári hefur nautakjöt í heildina hækkað um tæp átta prósent í verði.

Það er mun meiri hækkun en á öðrum kjöttegundum, en lambakjöt og fuglakjöt hefur til að mynda lækkað um tvö til þrjú prósent í verði á síðustu átján mánuðum.

Innflutningur á nautakjöti hefur tífaldast hér á landi vegna aukinnar eftirspurnar og minni framleiðslu innanlands. Sérstaklega hefur innflutningur á nautgripakjöti til hakkgerðar aukist síðustu misseri og á sama tíma hefur nautahakk hækkað um tæp fimmtán prósent í verði.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.vísir/stefán
Verndartollar eru á innfluttu nautakjöti þrátt fyrir að innlend framleiðsla anni ekki eftirspurn á markaði. Það gagnrýnir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, enda ætti vara sem hækkar í verði vegna skorts ekki að njóta verndartolla. 

„Okkar sjónarmið er að á meðan innlendir framleiðendur geti ekki annað eftirspurn eigi að fella niður þessa tolla,“ segir Andrés. „Þetta bitnar á neytendum, það liggur í hlutarins eðli. Það er verið að halda uppi verðinu með tollum og svo með vöntun á vörunni, þá gildir gamla lögmálið um framboð og eftirspurn, og verðið hækkar enn meira.“ 

Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, bendir á að tollar hafi verið lækkaðir í febrúar síðastliðnum með svokölluðum opnum tollkvóta.

Spurður af hverju verndartollar séu þó enn á innfluttri vöru sem annars fáist ekki í landinu, svarar hann að þannig séu lögin og framkvæmt sé samkvæmt þeim. 

„Reglan er að vernda innlenda framleiðslu, þannig að innflutta verðið felli ekki innlenda verðið,“ segir Ólafur. „Ef innflutningsverðið er lægra er lagður tollur á mismuninn.“ 

Ólafur er þá spurður hvort ekki skjóti skökku við að vernda innlendar verðhækkanir með tollum.

„Við getum ekki vitað hvort skorturinn sé að valda þessum verðhækkunum eða eitthvað annað. Það eru sveiflur í kjötverði, einnig á heimsmarkaði, sem gætu einnig útskýrt þessa hækkun.“


Tengdar fréttir

Danskt naut í SS pylsunum

Vegna mikils skorts á íslensku nautakjöti hefur Sláturfélag Suðurlands gripið til þess ráðs að nota danskt nautakjöt.

Hvernig aukum við nautakjöts- framleiðsluna?

Undanfarnar vikur hefur talsvert verið rætt um málefni nautakjötsframleiðslunnar og hvernig eigi að mæta ört vaxandi eftirspurn eftir nautakjöti hér á landi. Í þessari umræðu hefur sitthvað verið málum blandið

Tífalt meira nautakjöt flutt inn á milli ára

Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru rúm 535 tonn af nautakjöti flutt inn til landsins samanborið við tæp 49 tonn árið áður. Mesta aukningin er á kjöti til hakkgerðar. Frumvarp um innflutning á erfðaefni til kjötframleiðslu er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×