Skólán frá Jesú 25. september 2014 10:00 Sigrún Dís Hauksdóttir segir stíl sinn vera stelpulegan og gauralegan í senn. mynd/ernir
Sigrún Dís Hauksdóttir er forseti Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands. Hún lenti í óborganlegu tískuslysi eftir grímuball á Selfossi. Hvenær kviknaði tískuáhuginn? Tískuáhuginn fór hratt vaxandi þegar ég byrjaði í menntaskóla því í Verzló ríkir mikill áhugi á tísku.Hvernig lýsirðu eigin stíl? Ég hef síbreytilegan stíl, allt frá sætum blómakjól yfir í að vera hálf „gauraleg“ en snjóbrettaáhugi minn kveikti á þeim stíl.Hvaðan hefurðu tískuvitið? Ætli ég hafi það ekki frá dætrum tvíburasystur mömmu. Þær hafa verið fyrirmyndir mínar á flestum sviðum frá því ég man eftir mér. Ég fæ samt innblástur af eigin stíl mestmegnis í skólanum og á netinu.Áttu þér uppáhaldstískuverslanir? Já, ég byrja yfirleitt í ódýru keðjunum eins og H&M og Forever 21 þegar ég fer í verslunarferðir til útlanda; annars er ég ástfangin af TopShop og vintage-búðum og finnst ekkert smá gaman að gramsa. Stemningin þar inni fær mann til að ganga skrefinu lengra. Mér finnst þó að notuð föt mættu vera ódýrari.Eyðir þú miklu í fatakaup? Já, stór hluti launa minna fer í föt.Hefurðu lent í tískuslysi? Já, mér dettur ein spaugileg uppákoma í hug. Þá fór ég á grímuball á Selfossi og gisti hjá vinkonu minni. Morguninn eftir keyrði ég beint frá Selfossi í skólann, samferða bekkjarbróður mínum. Ég hafði verið á hælum á ballinu en gleymt aukaskóm svo skóladaginn þann var ég í sandölum númer 44 sem ég fékk lánaða hjá bekkjarbróður mínum sem var Jesús á grímuballinu.Hver er þinn helsti veikleiki þegar kemur að tísku? Ég er veik fyrir jökkum og hálsmenum.Hvað yrði fyrir valinu ef þú mættir kaupa þér eina nýja flík í dag? Mig langar í fallega kápu í lit eða munstri. Ég hef samt ekki látið það eftir mér því kápur eru svo dýrar. Þegar ég kaupi dýra flík vil ég geta notað hana oft en mér finnst óþægilegt að klæðast sömu flíkinni oft ef hún er áberandi. Því eru kápurnar mínar frekar látlausar.Hvaða litur klæðir þig best? Ljósir litir.Áttu þér uppáhaldsflík? Já, það er svarti bomber-jakkinn minn.Hverju klæðistu við sparileg tilefni? Háum hælum, sparilegum jakka eða kápu, og kjól eða pilsi. Ég er sjaldan í buxum þegar ég klæði mig fínt.Ertu liðtæk á saumavélina og að sauma á þig sjálf? Ég kann að fikta mig áfram en hendi frekar fötunum mínum í Ruth vinkonu eða Sólborgu frænku ef ég þarf að breyta eða bæta.Ertu hrifin af skartgripum? Já, ég á mikið af áberandi hálsmenum.Hvaða ilmvatn notar þú? Beyonce Heat í rauða glasinu.Hvaða einn hlutur er ómissandi í snyrtibuddunni? Hyljarinn frá Make Up Store.Hvað er það besta við haust- og vetrartískuna? Treflar og kápur.Áttu þér tískufyrirmynd? Ekki beint, en Mary Kate og Rihanna eru oft mjög töff.Lumarðu á góðu fegrunarráði? Að hita augnhárabrettarann með hárblásara. Þá haldast augnhárin krulluð út daginn og líta út fyrir að vera lengri.Kjóll, pils eða buxur? Ég er mjög hrifin af pilsum fyrir fínni tilefni því hægt er að vinna svo mikið með þau. Annars kýs ég buxur dagsdaglega.Einlitt eða munstrað? Munstrað er skemmtilegra þótt ég eigi mun meira af einlitum fötum.Háir hælar eða flatbotna? Undantekningarlaust háir hælar þegar ég fer eitthvað fínt en hvunndags er ég langoftast í flatbotna skóm.Eru Verzlingar meðvitaðri um tískuna en aðrir framhaldsskólanemar? Mér finnst tíska vera þannig að enginn er með meira vit en annar. Allir hafa sinn eigin stíl. Að sjá hugmyndir annarra gerir tískuna áhugaverða og skemmtilega. Hins vegar er hægt að hafa mismikinn áhuga á tísku og mismikinn metnað fyrir því að vera töff. Margir í Verzló hafa mjög mikinn áhuga á tísku og okkur þykir gaman að vera vel til fara.Hvað einkennir klæðaburð Verzlinga? Verzlingar eru almennt mjög snyrtilegur og erfitt að mæta of fínn á viðburði Verzlinga.Þarf forseti NFVÍ að vera fyrirmynd annarra í klæðaburði og góðum siðum? Ég hef ekki fundið fyrir þeirri kröfu að þurfa að klæða mig á ákveðinn hátt en hins vegar þykir mér mikilvægt að vera góð fyrirmynd almennt.
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Söngvari YMCA látinn Tónlist Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Fleiri fréttir Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Sjá meira