Leysa algengt peningavandamál Gunnar Leó Pálsson skrifar 11. september 2014 15:30 leysa vandann Hér eru þeir Arnar Jónsson, Gunnar Helgi Gunnsteinsson, Jón Dal Kristbjörnsson og Trausti Sæmundsson hafa unnið að smíði nýs greiðsluapps sem kallast Sway. vísir/gva „
Við erum að leysa vandamál sem flestir þekkja vel. Þegar þú leggur út fyrir einhverju og vinirnir gleyma að borga þér,“ segir Arnar Jónsson, einn af stofnendum frumkvöðlafyrirtækisins Memento sem unnið hefur að þróun nýs greiðsluapps sem kallast Sway. Memento tók þátt í Gullegginu seinasta vor og komst þar í úrslit. Um er að ræða smáforrit sem gerir kleift að halda utan um greiðslur og rukkanir milli vina, vandamanna eða hópa en með appinu má ganga frá greiðslum samstundis bæði á einfaldan og skemmtilegan hátt. „Það er ákveðið vandamál sem getur fylgt því að taka þátt í sameiginlegum útgjöldum en ýmsir kannast við vandræðin sem fylgja því að skipta reikningi á veitingastað, fara í kortaleikinn í leigubílnum, rukka vin um pítsu frá helginni áður eða allt utanumhaldið sem getur fylgt því að kaupa gjafir með öðrum. Oft lendir reikningurinn á einhverjum einum en seinlegt og óþægilegt getur reynst að innheimta þessar skuldir án þess að togstreita myndist,“ útskýrir Arnar. Hugmyndafræði Memento er að fyrir hverja greiðslu eða rukkun sé viðeigandi að taka mynd af atburðinum – upphæðinni til staðfestingar. Með þessu móti verður greiðsluferlið bæði skemmtilegra og félagsmiðaðra. Á einfaldan hátt geta notendur fundið vini sína og búið til tengslanet. „Kerfið er óháð bönkum, og í rauninni töluvert frábrugðið þeim greiðslulausnum sem við þekkjum í dag,“ segir Gunnar Helgi einn af stofnendunum. „Það má segja að þetta sé eins og Snapchat eða Instagram fyrir greiðslur,“ bætir hann við. Fyrirtækið hefur í eitt ár unnið að smíði appsins sem gefur notandanum kost á að hafa fullkomna yfirsýn yfir ógreiddar skuldir ásamt því að öll samskipti er varða vinagreiðslur eru á einum stað. Það er liðin tíð að þurfa að biðja vini um kennitölu og reikningsnúmer. Þessi lausn hentar því vel fyrir bæði einstaklinga, hópa, góðgerðarsamtök sem og félagasamtök. Sway er hannað fyrst og fremst með öryggi að leiðarljósi. Sett hefur verið saman gott teymi á sviði öryggismála og gagnagrunnskerfa sem hafa séð til þess að öryggi verði á heimsmælikvarða. Starfsmenn Sway eru nú að álagsprófa smáforritið en það mun fara í notkun á meðal almennings innan skamms. Forritið virkar bæði fyrir stýrikerfi Apple og Android.Sway appÝmislegt um appið Kerfið er byggt upp ekki ósvipað þekktum samfélagsmiðlum líkt og Snapchat og Instagram þar sem samskipti með ljósmyndir og persónuleg tengslanet eru þungamiðjan. Hugmyndafræði Memento er að fyrir hverja greiðslu eða rukkun sé viðeigandi að taka mynd af atburðinum – upphæðinni til staðfestingar. Með þessu móti verður greiðsluferlið bæði skemmtilegra og félagsmiðaðra (e. more social). Í raun má segja að með Sway sé verið að færa netbankaþjónustu og snjallsímagreiðslur bankanna upp á annað stig. Sway er hannað fyrst og fremst með öryggi að leiðarljósi. Sett hefur verið saman teymi helstu öryggissérfræðinga landsins sem hafa séð til þess að öryggi er á heimsmælikvarða bæði á sviði almenns netöryggis sem og gagnavörslu. Sway er hannað og þróað samhliða innleiðingu öryggismála og því bitna öryggisþættirnir lítið á notendaupplifuninni. Allt fjármagn er geymt á bankareikningi hjá viðskiptabanka og því ekkert eiginlegt fjármagn í kerfinu sjálfu. Auðvelt er að tengja debet- og kreditkort við kerfið en engar kortaupplýsingar eru geymdar hjá Sway heldur eingöngu hjá færsluhirðum. Öll samskipti sem og gögn eru dulkóðuð skv. nýjustu stöðlum. Persónuupplýsingum er haldið leyndum fyrir öðrum notendum. Kerfið verður einungis aðgengilegt í gegnum snjallsíma. Af öryggisástæðum verður ekki hægt að skrá sig inn í kerfið í síma annarra heldur einungis í þeim síma sem aðgangur var stofnaður. Þannig má tryggja að aðeins sé hægt að opna Sway-aðganginn úr eigin síma þar sem hver notandi er auðkenndur í sínu símtæki. Hefðbundin pin-númer verða að sjálfsögðu til staðar þegar greitt er.
Mest lesið Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Lífið Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Lífið Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Lífið Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Gagnrýni Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Lífið Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Tónlist Naglbíts-barn á leiðinni Lífið Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Lífið Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Lífið „Já, þau eru alvöru“ Lífið Fleiri fréttir Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Oddvitaáskorunin: Ætlaði sér að verða næsti Beckham Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Oddvitaáskorunin: Dreymdi um að verða veðurfræðingur Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Búið spil fimm mánuðum eftir fæðingu dótturinnar Sjá meira