Fleiri glíma við langtímaatvinnuleysi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 20. ágúst 2014 00:01 Háskólamenntuðum á atvinnuleysisskrá hefur fjölgað um tvö prósent undanfarið ár og eru nú 24 prósent atvinnulausra. vísir/daníel
Af þeim sem eru á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar í júlí glíma 54 prósent við langtímaatvinnuleysi eða um 3.200 manns. Með langtímaatvinnuleysi er átt við þá sem hafa verið atvinnulausir í sex mánuði eða lengur, en af þessum hópi hafa rúmlega 1.600 verið atvinnulausir í ár eða lengur. Langtímaatvinnuleysi hefur aukist jafnt og þétt frá því í september í fyrra. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir áhyggjuefni að á meðan atvinnuástandið batni almennt, fækki ekki í þessum hópi. „Þessar tölur segja ekki allt því hópurinn sem er búinn með bótarétt og fær fjárhagsaðstoð fellur utan við mælingar okkar og er ekki inni í þessum tölum,“ segir Gissur. Samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar fengu þremur prósentum fleiri fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg á tímabilinu janúar til maí á þessu ári, en á sama tíma í fyrra. „Þetta er hætta sem skapast eftir kreppu,“ segir Gissur. „Enda samspil af heilbrigðislegum og félagslegum þáttum sem ýtir fólki út af vinnumarkaðnum til lengri tíma í kjölfar atvinnumissis.“Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir langtímaatvinnuleysi vera áhyggjuefni.vísir/vilhelmAtvinnuleysi á landsvísu hefur hins vegar ekki verið lægra frá því í október árið 2008. Gissur segir skort á vinnuafli í mörg störf, svo sem í mannvirkjaiðnaðinum. Það sé þó beðið eftir fjölgun á störfum sem eru betur borguð og með hærri menntunarkröfur og vísar Gissur þar til háskólamenntaðra, en það er næststærsti hópur atvinnulausra og eini hópurinn þar sem atvinnulausum hefur fjölgað. Í dag eru háskólamenntaðir 24 prósent atvinnulausra og til samanburðar eru iðnmenntaðir eingöngu rúmlega tíu prósent. Þeir sem hafa eingöngu grunnskólamenntun eru þó enn í stærstum hluta eða 44 prósent atvinnulausra. Þróunin virðist þó vera sú að þeim fækki á atvinnuleysisskrá, á meðan háskólamenntuðum fjölgar. Þriðji áhyggjuþátturinn að mati Gissurar eru erlendir ríkisborgarar. „Það gengur verr að koma fólki sem ekki er með málakunnáttu í störf. Þetta er fólk sem fékk störf á uppgangstíma en á erfitt með að komast aftur út á vinnumarkaðinn,“ segir Gissur en erlendir ríkisborgarar eru 19 prósent þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá og tæplega sextíu prósent þeirra eru Pólverjar.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira