Semja um munkaklaustur á næsta ári Freyr Bjarnason skrifar 20. ágúst 2014 09:15 Til stendur að munkar fái afnot af Úlfljótsvatnskirkju á næsta ári. Mynd/ Ragnhildur Eysteinsdóttir
Stefnt er að því að á næsta ári verði gengið frá langtímasamningi milli Skógræktarfélags Íslands og kaþólsku kirkjunnar um að munkaklaustur verði staðsett að Úlfljótsvatni. Skógræktarfélagið keypti jörðina fyrir þremur árum ásamt skátahreyfingunni af Orkuveitu Reykjavíkur. „Við eigum kirkjuna sem er þarna [Úlfljótsvatnskirkju] og það er unnið að því að þarna verði kirkjuleg eining frá kaþólsku kirkjunni. Það er gert ráð fyrir því að það komi þarna munkar,“ segir Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands. Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu til eins árs um áframhaldandi leigu á eignum Skógræktarfélags Íslands á svæðinu, þar á meðal kirkjunni. Stærð landsins er um 1.500 hektarar og að sögn Magnúsar er einnig ætlunin að rækta þar skóg. „Þarna eiga allir að fá tækifæri til að fara um landið. Það er hlutverk okkar skógræktarfélaga að gefa almenningi kost á því að nýta sér það.“ Kaþólska kirkjan hefur unnið hörðum höndum að því að klaustrið geti orðið að veruleika. Í hirðisbréfi Péturs Bürcher, biskups kaþólsku kirkjunnar, frá því í febrúar síðastliðnum kemur fram að til standi að koma á fót klaustri fyrir karlmenn „helst af Benedikts- eða Ágústínusarreglu sem réðu reyndar á miðöldum yfir nokkrum klaustrum á Íslandi. Stórt land með húsakosti og upphitaðri kirkju er þegar fundið á Úlfljótsvatni,“ segir í bréfinu. Þar vonast hann til að finna munka til að dvelja í klaustrinu og biður fyrir því að það takist. „Ég hef þegar lagt mig mikið fram við að finna munka og vona að draumur minn verði brátt að veruleika, draumur sem einnig margir aðrir, jafnt hérlendis sem erlendis, deila orðið með mér.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira