Stolt af þjónustu við þolendur kynferðisbrota Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 19. ágúst 2014 07:00 Sami staður Þolendur kynferðisofbeldis sækja sér aðstoð á Neyðarmóttöku sem deilir húsnæði með bráðamóttöku Landspítala. Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta hefur aldrei verið vandamál. Á tuttugu ára tímabili hefur þetta eina tilvik komið upp,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri bráðasviðs Landspítalans. Fréttablaðið sagði frá því í gær að fórnarlamb nauðgunar á Selfossi, sem var ekið á bráðamóttöku, hefði þurft að snúa heim án skoðunar vegna þess að of löng bið var eftir lækni. „Við getum verið stolt af þessari þjónustu. Þó er alltaf gott að taka hlutina til endurskoðunar og sjá hvað við getum gert betur,“ segir Guðlaug. Hún hyggst því taka málið upp innanhúss og funda með Eyrúnu Jónsdóttur, verkefnastjóra neyðarmóttöku. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að fá þessa umræðu af stað. Neyðarmóttakan, rétt eins og önnur starfsemi spítalans, er ekki hafin yfir gagnrýni,“ segir Guðlaug. „En ég hef ekki heyrt fólk kvarta mikið undan þessari þjónustu heldur hef ég frekar heyrt að hún sé öflug.“Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.Styrkja mætti þjónustu neyðarmóttöku til muna Guðlaug segir að alltaf sé hjúkrunarfræðingur á vakt sem setið hefur námskeið í að taka á móti fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Hún leggur áherslu á að þeir sem valist hafa til þeirra starfa sinni þeim af miklum myndugleik, umhyggju og fagmennsku. Þjónustan við fórnarlömb kynferðisofbeldis sem leita sér hjálpar á neyðarmóttöku sé endurskoðuð með reglubundnum hætti en að hennar mati sé málefnum móttökunnar vel fyrir komið. Þó er það staðreynd að þegar fórnarlamb kynferðisofbeldis kemur á neyðarmóttöku þarf að kalla út sérfræðilækni og bið eftir honum er alla jafna nokkrar klukkustundir. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, er þeirrar skoðunar að styrkja þurfi þjónustu neyðarmóttökunnar til muna. „Ég veit vel að það þarf að kalla út teymi og það getur tekið nokkra klukkutíma. En það vita ekki konurnar og karlarnir sem sækja sér hjálp. Hver klukkutími í þessum bráðafasa getur verið erfiður.“ Styrkja þurfi þjónustuna, sér í lagi ef litið er til þess hversu ört brotum hefur fjölgað í þessum málaflokki. Hún nefnir hugmyndir sem uppi hafa verið um að færa neyðarmóttökuna af bráðamóttökunni og skipuleggja hana á svipaðan hátt og starfsemi Barnahúss.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira