Íslenskir ökumenn undir áhrifum: Fleiri teknir dópaðir en ölvaðir Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 15. ágúst 2014 07:00 Ölvunarakstur hefur verið eitt mesta áhyggjuefni umferðarlögreglu en nú virðist ekki síður algengt að menn aki undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Vísir/Getty „
Jafnan hafa mun fleiri verið teknir vegna ölvunar við akstur heldur en aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en bilið hefur minnkað síðustu ár og ef fram heldur sem horfir stefnir í að í árslok verði þessu öfugt farið í fyrsta sinn,“ segir Snorri Örn Árnason, félagsfræðingur hjá upplýsinga- og áætlanadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Guðbrandur Sigurðsson, yfirmaður umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir þetta þó ekki bestu mælistikuna til að meta fjölda þeirra sem aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Til þess væri betra að líta til fjölda þeirra umferðaróhappa þar sem ávana- og fíkniefni koma við sögu. Þar er Bakkus reyndar fyrirferðarmeiri enn sem komið er en þeim tilfellum þar sem ávana- og fíkniefni koma við sögu í umferðarslysum fjölgar ört. Reyndar eru þau meira en helmingi fleiri á fyrri helmingi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Þróunin virðist því blasa við og þau á Samgöngustofu hafa vissulega áhyggjur af henni. Það er þó ekki vandalaust að blása til átaks enda getur það valdið undrun ef fólk, sem þegar er að brjóta lög í þeim tilfellum þegar um fíkniefni er að ræða, er beðið um að sýna skynsemi og aka ekki. „Fíkniefnaneysla er í sjálfu sér ólöglegt athæfi sem vandi hefur reynst að bregðast við, hvað þá þegar akstur undir áhrifum bætist við,“ segir Þórhildur Elínardóttir, upplýsingafulltrúi á Samgöngustofu. „Í þeim tilgangi að sporna gegn þessari óheillaþróun vill Samgöngustofa leggja aukna áherslu á samvinnu um þetta málefni, sérstaklega við til að mynda lögreglu og landlækni en einnig safna gögnum og upplýsingum um þær aðferðir sem reyndar hafa verið hjá öðrum þjóðum.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira