Vísbending um svarta vinnu Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. ágúst 2014 07:00 Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Beiðnum um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna nýbygginga og viðhalds íbúðahúsnæðis hefur fækkað verulega á þremur árum. Framkvæmdastjóri Samiðnar segir mögulegt að svört vinna sé að aukast en framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir til í dæminu að á rigningarsumrum eins og í fyrra sæki fólk til sólarlanda frekar en að láta dytta að fasteignum sínum. Samkvæmt tölum frá Ríkisskattstjóra voru beiðnir um endurgreiðslu í heildina 18.024 árið 2010. Í fyrra voru afgreiddar endurgreiðslubeiðnir aftur á móti 13.911, þar af 12.442 vegna viðhalds á húsnæði en 1.469 vegna nýbygginga. Virðisaukaskattur að upphæð 2.906 milljónir hefur verið endurgreiddur vegna ársins 2010 en 2.629 milljónir vegna ársins 2013. Þær tölur miðast við verðlag hvers árs. Ráðist var í átakið Allir vinna til að örva framkvæmdir fyrst eftir hrun en það hefur verið framlengt á hverju ári. Verkefnið felur meðal annars í sér að allur virðisaukaskattur af vinnu við íbúðarhúsnæði er endurgreiddur. Vinna við gerð fjárlagafrumvarpsins stendur nú sem hæst. Fréttablaðið hefur ekki upplýsingar um það hvort fjármálaráðherra hyggst framlengja átakið aftur. Hann hefur þó sagt að hann vilji einfalda virðisaukaskattskerfið. Kristrún Heimisdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, segir að samtökin hafi átt ríkan þátt í að koma Allir vinna á. „Við teljum það svo vel heppnað að við hvetjum til þess að það haldi áfram,“ segir Kristrún. „Við vitum líka að öflug kynning skiptir máli og það væri spennandi að fara í nýtt kynningarátak,“ bætir hún við. „Við fyrstu sýn virðast [endurgreiðslubeiðnir] í takt við það sem við vitum, að einstaklingar eru ekki mikið í nýframkvæmdum og að rigningarsumur hindra viðhald húsa sem ella færi fram. En við munum rýna betur í þessar nýju upplýsingar,“ segir Kristrún enn fremur.Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar og sérfræðingur um ástandið Kárahnjúka.Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir að það komi á óvart að endurgreiðslubeiðnunum fækki. Hann bendir þó á að verkefnið sé minna kynnt fyrir almenningi núna en áður. „Þetta var sérstaklega auglýst á tímabili til að reyna að örva framkvæmdir þegar þær voru í lágmarki. Þessu var haldið mjög að fólki til að fá það til að nýta sér þetta til að fara í framkvæmdir,“ segir Þorbjörn. Hann segir að líka megi velta fyrir sér hvort svarta vinnan sé að aukast aftur. Þegar verkefni eru unnin svart sækir fólk eðli málsins samkvæmt ekki um endurgreiðslu. „Það er auðvitað umhugsunarvert þó að það sé ekki hægt að vera með neinar fullyrðingar. Þegar peningaveltan verður meiri þá vill svarta vinnan aukast,“ segir Þorbjörn.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira