Ekkert hefur verið ákveðið um útfærslu á sparnaðinum Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. ágúst 2014 11:30 Eygló Harðardóttir og Soffía Eydís Björgvinsdóttir kynntu hugmyndir verkefnastjórnarinnar á fundi í vor.fréttablaðið/Daníel.
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir að þau Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra séu sammála um mikilvægi þess að koma á fót framtíðarhúsnæðissparnaðarkerfi. „En nákvæmlega hvernig það yrði útfært liggur ekki fyrir,“ segir Eygló. Sérfræðihópur á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða leggst algjörlega gegn hugmyndum verkefnahóps á vegum félagsmálaráðherra sem lagði til í maí að heimild til þess að nýta séreignarsparnað til greiðslu húsnæðislána yrði gerð varanleg. Slíkt fyrirkomulag, til skamms tíma, var hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem samþykktar voru á vorþingi. Eygló Harðardóttir„Fjármálaráðherra, sem fer með málefni sem snúa að lífeyrissparnaði landsmanna, hafði raunar þegar tekið af skarið því hann taldi ekki rétt að tengja húsnæðissparnað við séreignarsparnað til langs tíma,“ segir Eygló og bendir á að hún hafi sjálf sem þingmaður lagt fram frumvarp um sérstakar skattaívilnanir vegna húsnæðissparnaðar. „Þannig að það var önnur hugsun þar en kemur fram í tillögum verkefnastjórnarinnar,“ segir Eygló. Í gagnrýni sérfræðihóps lífeyrissjóðanna segir að séreignarsparnaður sé nauðsynlegur þáttur til að tryggja eftirlaunaþegum nægilegan lífeyri. Þá sé gert ráð fyrir að eftirlaunaþegum muni fjölga mikið á næstu árum. Án séreignarsparnaðar yrði byrðin því meiri fyrir þá sem eru á vinnumarkaði. Árni Páll ÁrnasonÁrni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tekur undir gagnrýni sérfræðihóps lífeyrissjóðanna. Hann bætir við að sú leið sem verkefnastjórnin vill fara sé ekki góð því hún skapi mikinn aðstöðumun milli þeirra sem fara snemma að vinna og skapa sér tekjur og svo hinna sem fara í framhaldsnám. „Því þetta er náttúrulega tengt atvinnuþátttöku. Og þetta þýðir þá að ungt fólk sem fer í háskólanám getur verið að koma 25-26 ára út úr háskóla og á ekkert. Er ekki búið að geta myndað neinn rétt meðan þeir sem fara á vinnumarkaðinn eru búnir að mynda réttinn. Þetta eykur aðstöðumun þeirra sem eru í skóla og hinna sem eru á vinnumarkaði,“ segir Árni Páll. Það sé nákvæmlega ekki það sem eigi að gera því að á Íslandi sé færra fólk með framhaldsmenntun en í nokkru öðru ríki í Evrópu. Að mati Árna Páls væri nær að auka fjölda fólks sem er með framhaldsmenntun í stað þess að skapa hvata fyrir fólk til að hætta í skóla og fara að vinna.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira