Iðkun íþrótta hjálpar börnum sem verða fyrir einelti í skóla Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 31. júlí 2014 10:00 "Ef vel er gert geta íþróttir verið frábær forvörn,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir, fótboltaþjálfari og lektor í tómstunda- og félagsmálafræði. VÍSIR/PJETUR
Iðkun íþrótta dregur úr neikvæðum afleiðingum eineltis, að minnsta kosti hjá strákum. Þetta eru niðurstöður rannsóknar vísindamanna við Gautaborgarháskóla sem studdust við gögn úr könnun á Norðurlöndunum, NordChild survey 2011, meðal foreldra 6.214 barna á aldrinum fjögurra til 16 ára. Greint er frá þessu á vefnum sciencenordic.com. Þar segir að samkvæmt svörum foreldranna hafi 15 prósent strákanna og 13 prósent stelpnanna orðið fyrir einelti. Niðurstöður rannsóknarinnar við Gautaborgarháskóla sýna að neikvæðar afleiðingar eineltis komi frekar fram hjá strákum en stelpum. Iðkun íþrótta auðveldaði þeim að takast á við eineltið. Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að íþróttaiðkun gagnaðist ekki stelpum á sama hátt. Haft er eftir einum vísindamannanna, Ylve Bjereld, að skýringin sé mögulega sú að strákar og stelpur stundi ekki sams konar íþróttir. Áður hefur verið sýnt fram á að íþróttaiðkun, einkum iðkun hópíþrótta, auki sjálfstraust og dragi úr þunglyndiseinkennum, að því er segir í frétt sciencenordic.com.@kvót fréttasíður: Vináttan hættir að vera verndandi þegar barn er tekið frá vinum sínum og sett í annað lið. @kvót fréttasíður nafnogtitill:Vanda SigurgeirsdóttirVanda Sigurgeirsdóttir, fótboltaþjálfari og lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur rannsakað einelti og sérstaklega út frá sjónarhorni barna. „Ég veit um dæmi þar sem börn voru lögð í einelti í skóla en sluppu við neikvæðar afleiðingar þess af því að umhverfið í íþróttunum var gott. Félagsskapurinn og vináttan er verndandi. Sjálfstraustið og sjálfsmyndin ræðst af þeim skilaboðum sem fást úr umhverfinu og ef vel er gert geta íþróttir verið frábær forvörn. En að sama skapi geta þær verið vettvangur þar sem einelti þrífst og börn eru niðurlægð ef fullorðna fólkið, og þá sérstaklega þjálfararnir, er ekki á varðbergi.“ Hún nefnir í því samhengi til dæmis skiptingu í lið eftir getu. „Slík skipting getur verið mjög viðkvæm fyrir börn og það skiptir miklu máli hvernig það er gert. Þjálfarar þurfa jafnframt að gæta að því að sinna öllum börnum jafnt óháð getu. Vináttan hættir að vera verndandi þegar barn er tekið frá vinum sínum og sett í annað lið.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira