Refir skila tekjum Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 31. júlí 2014 12:00 Ester Rut Unnsteinsdóttir
Oftast er rætt um vá og veiðar þegar refurinn kemst í umfjöllunina. Aðstandendur Melrakkaseturs segja hins vegar að refurinn sé auðlind sem vert sé að huga að. „Það komu um tvö þúsund í júní og júlí verður ekki síðri,“ segir Jónas Gunnlaugsson, rekstrarstjóri Melrakkasetursins í Súðavík. Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra komu um sex þúsund gestir. Hann segir flesta gestina koma erlendis frá og marga hafa komið til landsins einungis til að kynnast refnum. „Þetta er náttúrulega alveg einstakt, að geta komist í návígi við villt dýr,“ segir Ester Rut Unnsteinsdóttir frá Náttúrufræðistofnun Íslands, en hún hefur staðið að rannsóknum á svæðinu.Gæfur melrakki á HornströndumSumir hafa orðið hvekktari með auknum ágangi en þessi lætur sér vel lynda athyglina.mynd/melrakkasetur íslandsTveir erlendir rannsóknarnemendur eru nú að kanna hver efnahagslegur ávinningur landsins gæti verið af ferðum fólks sem kynnast vill refnum hér á landi. Niðurstöðu er að vænta með haustinu. Á safninu er fólk einnig frætt um refaveiðar og segir Ester Rut að mörgum þyki undarlegt hversu halli á refinn í umræðunni og sambýlinu við landann. Þau Ester Rut og Jónas eru sammála um að kominn sé tími til að ræða um refinn á öðrum nótum en að þar fari aðeins vargur og veiðibráð. Reyndar erum við hálfgerður viðkomuflokkur í samanburði við þetta dýr sem verið hefur hér frá því skömmu eftir að ísa leysti eftir ísöldina. Ekki eru ferðamenn einir um áhugann því margar heimildarmyndir hafa verið teknar upp á Hornströndum þar sem skolli er í aðalhlutverki. Nú hefur tökulið frá BBC nýlokið tökum þar. „Svo var ég að fá erindi frá japönskum aðilum sem vilja hefja tökur,“ segir Ester Rut. Hún er nýkomin úr rannsóknarleiðangri á Hornströndum og ekki eru öll gögnin góð sem úr honum fengust. Til dæmis fann hún kjálkabein af ref sem í voru haglagöt. „Þetta er ekkert nýtt,“ segir hún en áður hafa fundist óumdeild ummerki þess að veiðimenn hafi látið til sín taka á svæðinu sem hefur verið friðað í tvo áratugi. Þetta er þó algjör undantekning, segir hún.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira