Tvö stærstu skipin koma í september Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 30. júlí 2014 07:00 Skipið var vígt í júní í fyrra svo það er rétt svo að jómfrúrsvipurinn verði farinn af því þegar það kemur í Reykjavíkurhöfn. mynd/Princess Cruises
Umferð skemmtiferðaskipa eykst sífellt, samkvæmt tölum Faxaflóahafna, og stærð skipanna gerir skip íslenska flotans nær hlægileg í samanburði. Þann 14. september næstkomandi er von á stærra skipi en nokkru sinni hefur komið en það er skemmtiferðaskipið Royal Princess. Það er 139 þúsund tonna skip og tekur yfir þrjú þúsund og fimm hundruð farþega eftir því sem fram kemur á vefsíðu Princess Cruise sem á skipið. Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, segir algengt að um 1.500 manna áhöfn sé á þessum stærstu skipum. Það verða því álíka margir við hafnarbakkann og íbúar Vestmannaeyja og Hellu þegar prinsessan atarna kemur til hafnar. Nóg verður um að vera í höfninni í september því þá er einnig von á skemmtiferðaskipinu Adventures of the Seas sem er 137 þúsund brúttótonn. Það hefur áður komið hingað og er það nú þegar hið stærsta skip sem það hefur gert. En það er ekki vandalaust að taka á móti slíkum fjölda. Örvar Már Kristinsson, formaður Félags íslenskra leiðsögumanna, segir að faglærðir leiðsögumenn hrökkvi skammt þegar umferð skemmtiferðaskipa er sem mest og þá er hætt við að margir farþegar fari undir handleiðslu ófaglærðra leiðsögumanna. Ferðaskrifstofur eru skyldugar samkvæmt samningi til að leita til faglærðra fyrst en þegar stærstu hóparnir koma er jafnvel látið nægja að manneskja með næga tungumálakunnáttu leiðsegi hópi. „Annar vandi er sá að þegar stærstu skipin og jafnvel mörg á sama tíma koma fyllast okkar vinsælustu viðkomustaðir eins og til dæmis í gullna hringnum,“ segir hann. „Það er spurning hversu áhrifarík koma ferðamannsins er á stað sem er fullur af fólki. Við þurfum að fara að huga meira að því hvernig áfangastaður við viljum að Ísland sé.“ Ágúst segir að ef allar áætlanir gangi eftir muni um hundrað þúsund farþegar halda til hafna hér í sumar, sem er um átta þúsund fleiri en síðasta ár. Byrjað var að markaðssetja Faxaflóahafnir í þessum tilgangi snemma á tíunda áratugnum en það var ekki fyrr en um aldamótin síðustu sem þetta fór að taka á sig þá mynd sem við könnumst við í dag.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira