Spennistöð við róló vekur ugg Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 30. júlí 2014 10:15 Spennustöðin við leikvöllinn. Íbúar segja fátt sannað um áhrif segulsviðs en að börn og íbúar eigi að njóta vafans og því skuli fjarlægja spennustöðina. mynd/Þorleifur Geirsson
Íbúar í nágrenni við leiksvæðið Bjössaróló í Borgarnesi eru uggandi yfir spennistöð sem stendur þar við. Auk þess að standa við leikvöllinn er hún skammt frá tveimur íbúðarhúsum, fimm metrum frá öðru og tíu metrum frá hinu. Bent er á í bréfi, sem íbúarnir sendu sveitarstjórn Borgarbyggðar í þessum mánuði, að mikil rafsegulsmengun sé frá háspennustrengjum en einn slíkur liggur frá spennistöðinni um leiksvæðið. Enn fremur segir í erindinu að erfitt sé að sanna nokkuð í þessum efnum en bent hafi verið á tengsl alvarlegra sjúkdóma og nálægðar við spennistöð í einu hverfi bæjarins. Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti sveitarstjórnar, segir að erindinu sé tekið alvarlega og leitað hafi verið eftir upplýsingum frá RARIK. Í skýrslu frá Geislavörnum ríkisins og Brunamálastofnun segir að rannsóknir hafi farið fram víða um heim á hugsanlegum skaðlegum langtímaáhrifum segulsviðs. Þar hefur athyglin einkum beinst að hugsanlegum tengslum slíks segulsviðs og hvítblæðis í börnum. Í samantekt Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar frá 2007 segir hins vegar að fyrirliggjandi vísindaleg gögn séu ekki nægilega sterk til að sýna fram á orsakasamhengi þar á milli.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira