Lög um ærumeiðingar ströng í alþjóðasamanburði Bjarki Ármannsson skrifar 29. júlí 2014 09:00 Þrír menn hlutu dóm fyrir að smána bandarísku þjóðina árið 2002. Vísir/Vilhelm
Hvergi í Evrópu varðar móðgun gagnvart erlendri þjóð eða þjóðarmerki, eða móðgun við fána Evrópusambandsins eða Evrópuráðs, þyngri hámarksrefsingu en á Íslandi. Samkvæmt 95. grein almennra hegningarlaga er hægt að fangelsa einstakling í sex ár fyrir „opinbera smánun“ af þessu tagi séu „sakir miklar“. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðlegu fjölmiðlastofnunarinnar (IPI) sem birt var fyrr í mánuðinum. Í skýrslunni eru borin saman lög um ærumeiðingar í aðildarríkjum Evrópusambandsins en þar er einnig að finna samantekt um þau sex ríki sem sótt hafa um aðild að sambandinu undanfarið, þar á meðal Ísland. Þar kemur fram að einungis Þýskaland er með svipað hörð viðurlög og Ísland fyrir brot af þessu tagi, en þar í landi er mest hægt að fá fimm ára fangelsisdóm. Enginn hefur hlotið hámarksrefsingu fyrir þetta brot á Íslandi, en til að mynda hafa Steinn Steinarr skáld og Erpur Eyvindarson rappari verið kærðir fyrir brot á þessum lögum.Margt megi betur fara í Evrópu Í skýrslunni er athygli vakin á því að þrátt fyrir hörð viðurlög við því að smána erlend ríki er ekki ólöglegt á Íslandi að móðga íslenska ríkið. Í skýrslunni er þess einnig getið að hægt sé að fá eins árs fangelsisdóm hér á landi fyrir að meiða æru látins manns. Aðeins fjögur önnur ríki Evrópu eru með jafnþung viðurlög. Þá er það tekið fram að Ísland og Tyrkland eru einu umsóknarríkin þar sem ærumeiðingar geta varðað fangelsisvist. Komist er að þeirri niðurstöðu í skýrslunni að margt megi betur fara í evrópskum lögum um ærumeiðingar. Víða standist lög og dómsúrskurðir ekki alþjóðlegar kröfur um tjáningarfrelsi, sem grafi undan lýðræðiskerfinu.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira