Höfum ekki efni á að gera ekki neitt Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 28. júlí 2014 07:45 Tvö prósent þjóðarinnar búa við sára fátækt. Fréttablaðið/gva „
Ég talaði um það allan tímann að þegar réttist úr kútnum myndi hópurinn sem býr við sára fátækt sitja eftir og það hefur verið að koma í ljós undanfarið ár.“ Þetta segir Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar, sem leiða mun vinnuhóp nýrrar velferðarvaktar sem fjalla á um sára fátækt. Annar hópur mun sérstaklega fjalla um aðstæður barnafjölskyldna. Velferðarvaktin var stofnuð að frumkvæði stjórnvalda snemma árs 2009 til að fylgjast með afleiðingum efnahagshrunsins á heimilin í landinu. „Hún hafði vítt starfssvið. Hún var meira í því að grípa utan um öngþveitið sem varð eftir hrunið. Úrræði samfélagsins beindust fyrst og fremst að atvinnulausum en ekki þessum sem voru fátækir fyrir kreppu. Sá hópur býr við enn krappari kjör núna. Ég fagna þessu framtaki hjá félagsmálaráðherra að setja vaktina aftur af stað og það er gott að starfssvið hennar hefur verið þrengt.“vilborg oddsdóttirVilborg bendir á að í tölum Hagstofunnar komi fram að tvö prósent þjóðarinnar, eða sex til sjö þúsund manns, búi við sára fátækt. „Stærsti hlutinn er fólk sem hefur verið á örorkubótum til fjölda ára. Við erum kannski að horfa upp á þriðju kynslóð fólks sem er á örorkubótum og eða á framfæri félagsþjónustunnar. Við höfum ekki efni á að gera ekki neitt. Það kostar meira fyrir samfélagið að gera ekkert.“ Fyrst segir Vilborg eiga að kortleggja hópinn. „Við munum svo heyra í fólkinu sjálfu og kanna hvernig einstaklingarnir sjá sjálfir fyrir sér hvernig líf þeirra geti breyst. Lausnirnar þurfa að vera einstaklingsmiðaðar. Almennu úrræðin, eins og barnabætur og húsnæðisbætur, ná ekki til þessa hóps. Það þarf sértæk úrræði. Við þurfum að hugsa hlutina upp á nýtt.“ Markmiðið er að fyrstu tillögur nýrrar velferðarvaktar til úrbóta verði tilbúnar í byrjun næsta árs.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira