Sigmundur fundaði með borgarstjóra Edmonton Stefán Árni Pálsson skrifar 7. mars 2014 14:42 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er staddur í vinnuferð í Kanada. vísir/pjetur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ávarpaði í gær Efnahags- og þróunarráð Edmonton í Kanada en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Forsætisráðuneytinu. Í ræðu sinni fjallaði ráðherra um umhverfi fjárfestinga og viðskipta á Íslandi og aukna möguleika á samvinnu milli Íslands og Kanada í kjölfar bættra flugsamgangna. Nefndi forsætisráðherra meðal annars aukin tækifæri í viðskiptum og fjárfestingum, ferðamennsku, samvinnu á sviði auðlindanýtingar og í málefnum norðurslóða, sem og í menntamálum. Þá átti forsætisráðherra fund með Don Iveson, borgarstjóra Edmonton. Borgar- og skipulagsmál voru meðal þess sem rætt var á fundinum en einnig var rætt um aukna möguleika hvað ferðamennsku og viðskipti varðar í kjölfar flugs Icelandair beint til Edmonton. Í borginni er mikill áhugi á auknum samskiptum við Ísland og lýsti borgarstjórinn 6. mars sem „Íslandsdag“ og afhenti forsætisráðherra skjal því til viðurkenningar. Forsætisráðherra tók þátt í fyrirspurnartíma í Albertaþingi og heimsótti Listasafnið í Alberta. Þá var ráðherra viðstaddur leik Edmonton Oilers og New York Islanders í NHL deildinni í íshokkí í gærkveldi. Í dag mun forsætisráðherra ávarpa Viðskiptaráð Edmonton og kynna sér ferðamálaiðnaðinn og olíuiðnaðinn í Albertafylki. Ráðherra mun eiga fund með menningarmálaráðherra Albertafylkis og halda móttöku til heiðurs Vestur-Íslendingum en fjölmargir Kanadamenn af íslenskum uppruna búa í Edmonton og Albertafylki. Kanadískir fjölmiðlar hafa tekið fjölda viðtala við forsætisráðherra á meðan á dvöl hans hefur staðið í Edmonton. Vinnuheimsókn ráðherra lýkur á morgun. Kanada en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Forsætisráðuneytinu. Í ræðu sinni fjallaði ráðherra um umhverfi fjárfestinga og viðskipta á Íslandi og aukna möguleika á samvinnu milli Íslands og Kanada í kjölfar bættra flugsamgangna. Nefndi forsætisráðherra meðal annars aukin tækifæri í viðskiptum og fjárfestingum, ferðamennsku, samvinnu á sviði auðlindanýtingar og í málefnum norðurslóða, sem og í menntamálum. Þá átti forsætisráðherra fund með Don Iveson, borgarstjóra Edmonton. Borgar- og skipulagsmál voru meðal þess sem rætt var á fundinum en einnig var rætt um aukna möguleika hvað ferðamennsku og viðskipti varðar í kjölfar flugs Icelandair beint til Edmonton. Í borginni er mikill áhugi á auknum samskiptum við Ísland og lýsti borgarstjórinn 6. mars sem „Íslandsdag“ og afhenti forsætisráðherra skjal því til viðurkenningar. Forsætisráðherra tók þátt í fyrirspurnartíma í Albertaþingi og heimsótti Listasafnið í Alberta. Þá var ráðherra viðstaddur leik Edmonton Oilers og New York Islanders í NHL deildinni í íshokkí í gærkveldi. Í dag mun forsætisráðherra ávarpa Viðskiptaráð Edmonton og kynna sér ferðamálaiðnaðinn og olíuiðnaðinn í Albertafylki. Ráðherra mun eiga fund með menningarmálaráðherra Albertafylkis og halda móttöku til heiðurs Vestur-Íslendingum en fjölmargir Kanadamenn af íslenskum uppruna búa í Edmonton og Albertafylki. Kanadískir fjölmiðlar hafa tekið fjölda viðtala við forsætisráðherra á meðan á dvöl hans hefur staðið í Edmonton. Vinnuheimsókn ráðherra lýkur á morgun.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Innlent Fleiri fréttir Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir Sjá meira