Innlent

„Æi strákar þetta er ekkert að marka, sorry“

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa hótað lögreglumönunum lífláti og samræmdist sú játning hans upptökum úr "Eyewitness“ búnaði lögreglubifreiðarinnar.
Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa hótað lögreglumönunum lífláti og samræmdist sú játning hans upptökum úr "Eyewitness“ búnaði lögreglubifreiðarinnar. VÍSIR/GVA
Rúmlega tvítugur karlmaður var í gær dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir líflátshótun í garð tveggja lögreglumanna og líkamsárás á Egilsstöðum. 

Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa hótað lögreglumönunum lífláti og samræmdist sú játning hans upptökum úr „Eyewitness“ búnaði lögreglubifreiðarinnar.

„Já mér er skítsama um ykkur“, „djöfull eruð þið fokking rottur“, „þú ert skíthræddur við mig“ og „djöfull skal ég fokking drepa ykkur“ eru setningar sem maðurinn lét falla í garð lögreglumanna

Dómurinn taldi hótunina vera til þess fallna að valda lögreglumönnunum ugg um eigin velferð. Jafnvel þó maðurinn hafi borið hótunina til baka 14 sekúndum síðar með orðunum: „Æi strákar þetta er ekkert að marka, sorry.“ Til þess var þó litið við ákvörðun refsingar.

Hann var einnig dæmdur fyrir fyrir tilraun til þess að kýla annan lögreglumanninn áður en hann var borinn inn í lögreglubifreiðina. Maðurinn neitaði sök en framburður vitna bar þó um annað.  Dómurinn tók tillit til þess að maðurinn hefði ólíklega gert sér grein fyrir að um lögreglumann væri að ræða. Því var hann dæmdur fyrir líkamsárás en ekki brot gegn valdstjórninni hvað þennan hluta dómsins varðar.

Hann var hins vegar sýknaður af því að hafa sparkað í hinn lögregluþjóninn en engin vitni voru að því og lögreglumaðurinn aflaði sér ekki áverkavottorðs.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×