Ferðaþjónustuna bráðvantar fagmenntað starfsfólk Svavar Hávarðsson skrifar 20. nóvember 2014 07:00 Fréttablaðið/Vilhelm
Fjölgun fagmenntaðs starfsfólks í ferðaþjónustu er langt frá því að vera nægilega hröð og hefur engan veginn haldið í við fjölgun ferðamanna síðastliðin ár. Framboð menntunar er sundurleitt, samráð fræðsluaðila skortir og utanumhald um málefni menntunar í ferðaþjónustu er ófullnægjandi. Samhliða fjölgun ferðamanna hefur fyrirtækjum fjölgað um 72 prósent frá árinu 2008. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu sem KPMG vann að beiðni Ferðamálastofu á framboði og fyrirkomulagi menntunar tengdrar ferðaþjónustu og þörfum greinarinnar þar að lútandi. Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri segir að niðurstöður vinnunnar gefi til kynna að farið sé að reyna á þanþol atvinnugreinarinnar þegar kemur að því að tryggja vandaða þjónustu. Við því þurfi að bregðast. „Of miklar hindranir virðast vera innbyggðar í kerfið til þess að tryggja að vöxtur og fagþekking haldist í hendur og það verður ein af megináskorunum ferðaþjónustunnar á næstu árum að tryggja að gæði, fagmennska og tækifæri til þekkingaröflunar og þjálfunar þeirra sem starfa í greininni verði leiðarljós þróunarinnar,“ segir Ólöf. Spurð í hvaða vandræðum ferðaþjónustan geti lent ef skortur á fagmenntuðu vinnuafli verður viðvarandi segir Ólöf: „Eigi atvinnugreinin að vaxa með sjálfbærum hætti og í sátt við land og þjóð verður að tryggja að menntunartækifærin séu í samræmi við þarfir atvinnurekenda og starfsfólks, þannig að hægt sé að tryggja gæðin. Verði sú ekki raunin er hætt við að orðspor Íslands sem áfangastaðar ferðamanna bíði skaða af. Í ljósi þess að um 40 prósent erlendra ferðamanna segjast hafa tekið ákvörðun um Íslandsferð á grunni ábendinga frá vinum og vandamönnum og með hliðsjón af þeirri áherslu sem okkar gestir leggja á mikilvægi gestrisni og gæða, er hætt við að þetta hefði afar neikvæð áhrif á atvinnugreinina í heild.“Ferðamönnum fjölgar hraðar en fagfólki Rauði þráður greiningarinnar er að gap sé á milli fjölgunar ferðamanna og fagmenntaðs starfsfólks, en það sé hins vegar skiljanlegt þar sem aukning ferðamannastraumsins til landsins er fordæmalaus í heiminum. Til lengri tíma litið telst ljóst að mati aðila innan ferðaþjónustunnar og fræðslustofnana, sem KPMG ráðfærði sig við, að ef ekkert verður að gert muni verða erfitt að veita öllum þessum fjölda ferðamanna þá þjónustu sem þeir þarfnast, og sérstaklega verði að horfa til fjölgunar fagmenntaðra í hótelstjórnun, framreiðslu, matreiðslu og afþreyingariðnaðinum. Því er lagt til að stofnað verði fræðsluráð sem hefði yfirsýn yfir málefni menntunar í ferðaþjónustu þar sem ættu sæti fulltrúar stjórnvalda og hagsmunaaðila innan greinarinnar.
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Fleiri fréttir Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Sjá meira