Fleiri störf verða til með bættri nýtingu auðlinda Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 1. ágúst 2014 00:01 Náttúrufegurð er auðlind, segir forstjóri Umhverfisstofnunar. VÍSIR/PJETUR
Með skilvirkari auðlindanýtingu geta skapast fleiri störf og nýsköpun aukist. Þetta er ein af niðurstöðum nýrrar skýrslu EEA, Umhverfisstofnunar Evrópu, sem greint er frá á vef Umhverfisstofnunar Íslands. Í skýrslunni er tekið fram að Evrópusambandið þurfi að gera gagngerar breytingar á efnahagskerfi aðildarríkjanna ætli það að ná langtímamarkmiðum sínum í umhverfismálum. Bent er á að nýsköpun sé líklega einn mikilvægasti hvatinn til að nýta auðlindir á skilvirkari hátt. Önnur leið til að auka skilvirkni auðlindanýtingar gæti verið að draga úr sköttum á vinnuafli eins og tekjuskatti og leggja þess í stað skatta á óskilvirka auðlindanotkun og umhverfismengun.Kristín Linda ÁrnadóttirTil þess að leggja á slíka skatta hér þyrftu góðar upplýsingar um það sem er að gerast í þjóðfélaginu að liggja til grundvallar, segir Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar. „Það þarf góða tölfræði og góðan skilning á því hvernig kerfið spilar saman. Í því samhengi má til dæmis nefna að malarvinnsla er auðlind og náttúrufegurðin í landinu okkar er auðlind sem ferðaþjónustan tengist.“ Kristín Linda bendir á að Umhverfisstofnun hafi undanfarin ár minnt á mikilvægi græna hagkerfisins og grænnar nýsköpunar. „Í fiskiðnaðinum er farið að fullnýta hráefnið. Við viljum sjá þessa þróun í öðrum greinum.“Þorsteinn Ingi SigfússonÞorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, segir stefnt að meira samspili fyrirtækja í auðlindagörðum, eins og hann orðar það. „Úrgangur eins aðila verður þá hráefni annars. Gott dæmi um þetta eru verkefni sem við vinnum með álverunum. Unnið er að því að reyna að endurvinna úr kerbrotum, sem eru úrgangsfóðringar álkera, og álgjalli, sem er afgangsstærð við rekstur álkera, efni sem nota má sem hráefni í steinull.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira