Smygl á sígarettum færist mjög í aukana Jakob Bjarnar skrifar 1. ágúst 2014 12:15 Þessi sígaretta gæti sem best verið smygluð. Ótal leiðir eru til að smygla tóbaki til landsins og tollverðir eru svo fáir að erfitt er að sjá við því.
Smygl á sígarettum færist mjög í aukana, að sögn yfirtollvarðar; það gerist þegar verð á tóbaki hækkar og nú virðist ákveðnum þolmörkum náð. Tollverðir gripu nú í þessum mánuði tvö skip þar sem finna mátti smyglvarninginn sígarettur.Smygl hlýtur að setja strik í reikninginn Verð á tóbaki hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár. Sem dæmi fór gjald ríkisins á sígarettupakkann úr 365,64 krónum árið 2012 í 439,83 krónur árið 2013, sem samsvarar um sautján prósenta hækkun. Viðar Jensson, verkefnastjóri í tóbaksvörnum hjá Embætti landlæknis, heldur því fram að skattur á tóbaki sé vænlegasta leiðin til þess að draga úr neyslu tóbaks og víst er að sala á tóbaki hjá ÁTVR hefur dregist saman. En líkast til vantar inni í þá jöfnu lið sem heitir einfaldlega smygl. Tollverðir haldlögðu 132 karton af sígarettum í tveimur erlendum skipum fyrr í mánuðinum, annað var Horst B frá st. Johns og hitt var fiskiskipið NIDA frá Litháen. Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður segir smygl á sígarettum vera að færast í aukana, þó ekki sé hægt að fullyrða um það út frá þessum tveimur dæmum.Tollverðir eiga erfitt um vik „Veruleikinn er sá, og okkur grunar, að þetta sé að færast í aukana. Við verðum vör við það að þegar verð á tóbaki hækkar, þá verður freistingin meiri,“ segir Kári. Hann segir jafnframt að tollgæslan eigi ekki hægt um vik þegar stór gámaskip eru annars vegar, sem kannski eru með 200 gámum. „Hver sem er getur séð í hendi sér að það eru erfið mál. En við reynum okkar besta.“ Kári var ekki með tölur haldbærar, hversu mikið hefur verið haldlagt það sem af er ári. Auk þess sem talsvert er tekið á Leifsstöð af sígarettum. Honum virðist þó miðað við þær tölur um aukningu að ræða þó hann treysti sér ekki til að fullyrða um það. Og smyglleiðirnar eru margar og greiðar.Smyglleiðir margar og greiðar „Það eru náttúrlega að koma skip og flugvélar á öllum tímum sólarhringsins, alla daga ársins og þú þarft að hafa ansi marga ef þú ætlar að loka öllum þeim leiðum sem í boði eru.“Hversu margir tollverðir eru það sem reyna að sjá við smyglurum? „Tollverðir í heild eru rétt rúmlega hundrað. Í eftirliti, sem dreifist þá á allan sólarhringinn, eru um það bil helmingur af þeim. Aðrir eru í allskonar pappírsvinnu og eftirliti öðru. Ég gæti trúað að þetta séu einhverjir tugir tollvarða sem sinna þessu eftirliti um allt land,“ segir Kári.
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent Fleiri fréttir Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Sjá meira