Hefur aldrei séð fleiri í brekkunni á föstudegi Atli Ísleifsson skrifar 1. ágúst 2014 22:56 Mikill mannfjöldi er nú saman kominn í Herjólfsdal líkt og fyrri ár um verslunarmannahelgi.
Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segist aldrei hafa séð fleiri í brekkunni á föstudagskvöldi um verslunarmannahelgi, en mikill mannfjöldi er nú saman kominn í Herjólfsdal. „Ég gæti vel trúað því að það séu í kringum ellefu þúsund manns í Herjólfsdal þessa stundina. Ég hef ekki áður séð svona margt fólk á föstudagskvöldi. Svo kemur fleira fólk á morgun og á sunnudag. Þetta lítur vel út og veðurspáin okkur hagstæð,“ segir Birgir. Birgir segir í samtali við Vísi að gott hljóð sé fólki enda ekki annað hægt. „Þetta gengur ljómandi vel og brekkan er stútfull.Kvöldvakan er á fullu og það er þétt setin brekkan. Ég hef sjaldan séð svona þétt setna brekku á föstudagskvöldi. Það er hellingur af fólki komið.“ Hann segir veðrið vera mjög milt og algert logn í dalnum. „Kaleo var að klára og Baggalútur er að byrja. Svo var Jón Jónsson að taka Þjóðhátíðarlagið fyrr í dag og tekur það eflaust aftur fyrir brennu. Þetta er stanslaus gleði. Mjög vel heppnað og fer mjög vel fram,“ segir Birgir og bætir við að veðrið sé gott og rólegt yfir fólki. Fólk sitji í brekkunni og njóti þess sem boðið er upp á. Þegar Vísir heyrði í lögreglunni í Vestmannaeyjum rétt fyrir klukkan 23 nú á föstudagskvöldinu var sagt að þjóðhátíðin hafi farið vel fram það sem af er og enginn verið færður í fangageymslu.V'isir/Kolbeinn TumiVísir/Kolbeinn TumiVísir/Kolbeinn TumiVísir/Kolbeinn TumiVísir/Kolbeinn Tumi
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira