Ólafur Áki ráðinn sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps Kjartan Atli Kjartansson skrifar 1. ágúst 2014 10:02 Ólafur Áki Ragnarsson
Ólafur Áki Ragnarsson hefur verið ráðinn sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps. Alls sóttu nítján um starfið en tveir drógu umsóknir sínar tilbaka. Þetta kemur fram á vef Vopnafjarðarhrepps. Þar segir að Capacent hafi unnið úr umsóknum og að fyrirtækið hafi haft umsjón með úrvinnslu málsins. Þótti Ólafur uppfylla vel allar þær hæfniskröfur sem settar voru. Á vef Vopnarfjarðar segir einnig:Sem fyrr greinir á Ólafur Áki að baki farsælan feril í sveitarstjórnarmálum, en hann var sveitarstjóri Búlandshrepps/Djúpavogshrepps í sextán ár og bæjarstjóri í sveitarfélaginu Ölfusi í átta ár. Síðastliðin fjögur ár hefur hann starfað hjá Þróunarfélagi Austurlands og síðar Austurbrúar ses og séð þar m. a. um málefni sveitarfélaga á Austurlandi. Hann hefur því yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af málefnum sveitarfélaga og er gjörkunnugur atvinnusvæði Austurlands. Ólafur Áki hefur jafnframt setið í fjölmörgum nefndum og ráðum og má þar meðal annars nefna setu hans í stjórn Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, samgöngu- og stóriðjunefnd á vegum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og stjórn Héraðsskjalasafns Austurlands. Hann hefur jafnframt setið í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfélaga.Er Ólafur Áki hér með boðinn velkominn til starfa með von um góða daga á Vopnafirði.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira