Innlent

Helga á fallegasta garðinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Helga tekur við verðlaununum.
Helga tekur við verðlaununum.
Fegursti garður Seltjarnarness er við Bakkavör 8a samkvæmt umhverfisnefnd Seltjarnarness, en Helga Kristín Gunnarsdóttir, aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla Seltjarnarness, hlaut á þriðjudag hin árlegu verðlaun umhverfisnefndar.

Auk Helgu Kristínar fengu nokkrir aðrir íbúar Seltjarnarness viðurkenningu fyrir vel hirta garða, snyrtilegt umhverfi, uppgerð hús og fegursta tréð. Þá var Kjarvalshúsið eitt þeirra húsa sem hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir einstaklega vel heppnaða endurgerð. 

Garðurinn hennar Helgu Kristínar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×