Borgarstjórn skorar á ríkisstjórn að halda þjóðaratkvæðagreiðslu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. mars 2014 15:21 Jón Gnarr borgarstjóri lagði tillöguna fyrir á borgarstjórnarfundi rétt í þessu. Vísir/Vilhelm
Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur skorað á ríkisstjórnina að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðkomu þjóðarinnar að ákvörðun um framhald aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu. Jón Gnarr borgarstjóri lagði tillöguna fyrir á borgarstjórnarfundi rétt í þessu. Hann hélt ekki sérstaka ræðu um áskorunina, heldur lagði hana til umræðu borgarstjóranar sem ræðir hana nú. Meirihluti borgarstjórnar telur að með því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu muni „ríkisstjórnin leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið.“ Áskorunin hljóðar svo í heild sinni:Borgarstjórn Reykjavíkur18. mars 2014Ályktunartillaga borgarstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðkomu þjóðarinnar að ákvörðun um framhald aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu.Borgarstjórn Reykjavíkur skorar á Alþingi að tryggja aðkomu þjóðarinnar að ákvörðun um framhald aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu. Í samræmi við gefin fyrirheit verði dregin til baka tillaga um að viðræðum verði slitið og ákvörðun um framhald þeirra sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Með því mun ríkisstjórnin leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið.kl. 16:08 Greidd hafa verið atkvæði um tillöguna. Hún var samþykkt með 10 atkvæðum, borgarfulltrúa Samfylkingar, VG og Bjartar framtíðar. 5 borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Sjá meira