Drógu 38 tennur úr búrhvalnum Gissur Sigurðsson skrifar 8. ágúst 2014 11:36 Búrhvalurinn fannst rekinn í fjörunni í Skarðsvík í Trékyllisvík á Ströndum fyrr í vikunni. hann verður líklega dreginn á haf út og sökkt vegna mengunar af hræinu. Vísir/Bjarni Þorgilsson
Búrhvalurinn, sem fannst rekinn í fjörunni í Skarðsvík í Trékyllisvík á Ströndum fyrr í vikunni, verður líklega dreginn á haf út og sökkt vegna mengunar af hræinu. Heimamenn hafa náð öllum tönnunum úr honum og leita nú kaupenda, en reðurinn var of laskaður til að hægt væri að gera hann að safngrip. Hvalurinn fannst í flæðarmálinu á landi Finnbogastaða og segir Guðbrandur Albertsson, bróðir bóndans þar, að þetta hafi ekki verið hvalreki til fjár líkt og á fyrri árum. Tennurnar hafi þó náðst út í fyrrakvöld. „Við bundum band í skoltinn og drógum hann að á flóðinu. Svo fórum við með hnífa, axir og sagir og dráttarvél á fjörunni og hömuðumst á þessu þar til við náðum tönnunum úr.“ Guðbrandur segir að 38 tennur hafi náðst úr hvalnum. „Talið er að það er einhver eftirsókn sé í þetta. Það er þó ekki alveg komið á hreint ennþá.“ Hann segir ekki ástæðu til þess að óttast að hvalurinn fari að blása upp og springa í fjörunni. „Það er gat á honum og það var gat á honum þegar hann fannst þarna. Innyflin héngu út svo ég hugsa að hann blási ekki upp.“ Guðbrandur segir jafnframt að menn hafi rætt það að draga hvalinn út og sökkva honum á háflæði til að koma í veg fyrir að hvalurinn úldni með viðeigandi óþef og mengun.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira