Ofurhugi á leið í kringum hnöttinn staddur í Reykjavík 16. júlí 2014 20:15
Bretinn Colin Hales er nú staddur hér á landi en hann er á leið í kringum hnöttinn á lítilli flugvél. Colin kom til Íslands á mánudag til að taka eldsneyti en hann hefur nýtt tímann til að skoða landið og hefur meðal annars flogið til Akureyrar og Egilsstaða. Héðan fer hann til Grænlands og stefnir á að taka þátt í stórri flugsýningu í Bandaríkjunum síðar í þessum mánuði. „Ég get ekki neitað því að ég var mjög spenntur fyrir því að koma til Íslands og landið hefur ekki valdið mér vonbrigðum. Ég hef séð landslag sem ég hef hvergi annars staðar séð. Ég hef ferðast um allan heim en hvergi séð jökla og eldfjöll á sama stað. Þetta er svo sannarlega stórglæsilegt,“ segir Colin. Vélina smíðaði Colin sjálfur en hann er flugvélaverkfræðingur að mennt. Það tók hann 14 ár að smíða vélina en hún fór fyrst á loft fyrr á þessu ári. En er ferð sem þessi ekki hættuleg? „Ég get ekki neitað því að það eru ákveðnir áhættuþættir. Ég hef aðeins eina vél og ef hún stoppar þá verð ég kominn í sjóinn á nokkrum mínútum. Það er ekki þægileg tilhugsun,“ segir Colin. Colin er sem stendur veðurtepptur hér á landi en hann stefnir á að fara af landi brott á föstudag, það er að segja ef veður leyfir. „Fólk er nú oft að gera grín að veðrinu í Bretlandi. En veðrið hér á Ísland, það breytist stöðugt. Svo já, það hefur vissulega skapað ákveðin vandamál fyrir mig,“ segir Colin.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira