Tap á A-hluta borgarsjóðs 2,3 milljarðar Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. ágúst 2014 14:31 Ráðhús Reykjavíkur VÍSIR/ANTON BRINK
Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2014 var staðfestur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 28. ágúst. Þar kemur fram að rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.353 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.711 milljónir króna á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 642 milljónum króna. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fjármagnsliði var þannig neikvæð um 1.973 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.496 milljónir króna eða 477 milljónum krónum lakari en áætlun gerði ráð fyrir. Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar en áætlun gerði ráð fyrir og auknum kostnaði við vetrarþjónustu.Halldór Halldórsson og Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, telja að rekstrarniðurstaðan sé óviðunandi þrátt fyrir hækkun útsvarstekna um tæpan einn milljarð króna. „Þessi niðurstaða á rekstri borgarsjóðs kallar á uppstokkun og nýja hugsun í rekstri borgarinnar", segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var þó jákvæð um 3.723 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.203 milljónir króna. Rekstrarniðurstaðan er því 1.520 milljónum krónum betri en gert var ráð fyrir. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Helstu ástæður má rekja annars vegar til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna hjá Félagsbústöðum og hins vegar til áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þar vegur þyngst gengismunur og verðmæti innbyggðra afleiða. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.667 milljónir króna sem er 591 milljón krónum lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira