Engin lög til um frístundaheimili Linda Blöndal skrifar 28. ágúst 2014 18:45
Engin lög eru til um starfsemi frístundaheimila hér á landi en um 90 prósent sveitarfélaga bjóða slíka þjónustu. Ekkert yfirlit er heldur til um skráningu á slík heimili og rannsóknir á áhrifum starfsins vantar sárlega, segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir lektor og skýrsluhöfundur um slík heimili. Í grunnskólalögum er heimild til að bjóða upp á lengda viðveru barna 6 til 9 ára á frístundaheimilum og raunar er gert ráð fyrir að í hverjum skóla sé skipulagt félags- og tómstundastarf. Almennar reglur um starfsemina skortir hins vegar og ólík viðmið eru á milli sveitarfélaga um barnafjölda, menntun starfsmanna og þjónustustig. Þá eru ekki fastar reglur um hve margir starfsmenn eru á heimilunum miðað við fjölda barna en börnin geta verið frá 12 til 18 talsins á hvern starfsmann. Þá er almennt ekki gerð sérstök krafa um menntun starfsmanna.Meirihlutinn er á frístundaheimili Í skýrslu sem gerð var á þessu ári fyrir menntamálaráðuneytið kom í ljós að 60 prósent barna á aldrinum 6-9 ára á landinu eru skráð á einhvers konar frístundaheimili. Kolbrún Þ. Pálsdóttir lektor við Háskóla Íslands í tómstunda- og félagsmálafræði er skýrsluhöfundurinn. Hún segir að foreldrar yngri barna nýti þjónustuna meira og flest séu þau til 16 eða 17 á daginn. Vandinn sé þó að hvergi sé að finna opinberar tölur um skráningu barna á frístundaheimilin eða hvað þar almennt fer fram.Dvelja klukkustundum saman á heimilunum Börnum hefur fjölgað undanfarin ár sem dvelja marga klukkutíma í viku á frístundaheimili. Þá stendur stórum hluta barna til boða heilsdagsdvöl á starfsdögum skóla. Fimmtungi stendur til boða heilsdagsdvöl í vetrarfríum og helmingnum um að dvelja þar allan daginn á sumrin. Linda Blöndal
Mest lesið Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Innlent Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Tveir á slysadeild með áverka í andliti Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Fleiri fréttir Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Gerir ráð fyrir harkalegri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Sjá meira