Afrísk svínapest að breiðast út Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2014 14:01 Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða. Vísir/GVA
Matvælastofnun hefur varað fólk við útbreiðslu afrískrar svínapestar sem breiðist nú um Evrópu. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða. Sjúkdómurinn berst ekki í önnur dýr né fólk.Í tilkynningu frá stofnuninni segir að mjög mikilvægt sé að fólk hafi þennan sjúkdóm í huga ef það er á ferðinni í ákveðnum löndum í austurhluta álfunnar „og taki alls ekki með sér hrátt eða illa hitameðhöndlað kjöt hingað til lands eða til annarra landa sem eru laus við sjúkdóminn.“ Afrísk svínapest hefur verið að brjóta sér leið úr austri til æ fleiri Evrópulanda. „Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða. Sjúkdómurinn berst ekki í önnur dýr né fólk. Veiran sem veldur sjúkdómnum getur m.a. borist með sýktum svínum og sæði, hráu kjöti af sýktum dýrum, sem og farartækjum, búnaði, fatnaði o.fl. sem mengast hafa af veirunni. Smitdreifing til nýrra landa er oftast rakin til matvæla og lifandi svína.“ Í tilkynningunni segir að rétt sé að minna á að bannað er að fóðra dýr sem alin eru til manneldis á dýrapróteinum, að undanskildu fiskimjöli. „Þetta á m.a. við um eldhúsúrgang sem kjöt getur leynst í. Dýraeigendur bera ábyrgð á að verja dýrin sín gegn sýkingum en það er á ábyrgð okkar allra að smitefni dýrasjúkdóma berist ekki til landsins.“ Sjúkdómurinn hefur verið til staðar í Rússlandi frá árinu 2007 og er nú landlægur þar. Georgía, Armenía, Aserbaídsjan, Úkraína og Hvíta-Rússland hafa jafnframt öll tilkynnt um tilfelli á undanförnum árum. „Á þessu ári hafa svo tilfelli greinst í Lettlandi, Litháen og Póllandi, sem staðfest hefur verið að eru af völdum sama stofns veirunnar og er á ferðinni í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi.“Á myndinni má sjá útbreiðslu sjúkdómsins frá 2007 til 2014.Mynd/Framkvæmdastjórn ESB.
Mest lesið Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Innlent Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Tveir á slysadeild með áverka í andliti Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Fleiri fréttir Samfylkingin sé að vinna mót „í vondri pólitík“ Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Kvenfélagskonur eru orðnar þreyttar á heilbrigðiskerfinu „Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands“ Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Gerir ráð fyrir harkalegri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Sjá meira